fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
433Sport

Allt á suðupunkti í Kórnum í kvöld – Kjaftbrúk Rúnars náðist á upptöku

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. ágúst 2021 20:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er allt á suðupunkti í Kórnum í Kópavogi í kvöld þar sem KR heimsækir HK í efstu deild karla í knattspyrnu. Tvö rauð spjöld fóru á loft í fyrri hálfleik.

KR leiddi í hálfleik þrátt fyrir að snemma leiks hafi Arnþór Ingi Kristinsson fengið rauða spjaldið. Elías Ingi Árnason dómari leiksins var ekki í nokkrum vafa þegar hann gaf Arnþóri sitt annað gula spjald.

„Annað gula hjá Arþóri Inga. Spot on,“ skrifar Hjörvar Hafliðason, Dr. Football og stuðningsmaður HK. Spjaldið rauða má sjá hér að neðan.

Allt varð vitlaust eftir rauða spjaldið og fauk í Rúnar Kristinsson þjálfara KR sem lét ýmis orð falla, mátti heyra þau í beinni útsendingu. „Þið eruð nú meiri helvítis jólasveinarnir,“ sagði Rúnar við Helgi Mikael Jónasson fjórða dómara leiksins.

KR komst yfir eftir tæpan hálftíma leik en lætin voru ekki á enda því undir lok fyrri hálfleiks fékk Kristján Finnbogason, markmannsþjálfari KR rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð. „Loksins rautt á bekkinn hjá KR. Heyrist allt í útsendingunni. Skelfing að heyra,“ skrifar Hjörvar.

„Rúnar Kristins við Helga fjórða dómara. „Þið eru nú meiru helvítis jólasveinarnir“ Ekki einu sinni gult spjald,“ segir Hjörvar Hafliða á Twitter.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Karólína játar að allt hafi verið klárað fyrir nokkrum vikum – „Verst geymda leyndarmál sem til er“

Karólína játar að allt hafi verið klárað fyrir nokkrum vikum – „Verst geymda leyndarmál sem til er“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Jóhann Berg og fjölskylda spennt fyrir nýju lífi í Abu Dhabi – „Mér fannst ég þurfa að stökkva á þetta“

Jóhann Berg og fjölskylda spennt fyrir nýju lífi í Abu Dhabi – „Mér fannst ég þurfa að stökkva á þetta“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Sindri spyr hvort íþróttafréttamenn taki með silkihönskum á kvennalandsliðinu

Sindri spyr hvort íþróttafréttamenn taki með silkihönskum á kvennalandsliðinu
433Sport
Í gær

Hræðilegar fréttir frá Spáni – Stjarna Liverpool lét lífið í bílslysi í morgun ásamt bróður sínum

Hræðilegar fréttir frá Spáni – Stjarna Liverpool lét lífið í bílslysi í morgun ásamt bróður sínum
433Sport
Í gær

Dumfries fáanlegur fyrir 25 milljónir

Dumfries fáanlegur fyrir 25 milljónir