fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir að Arteta verði að vinna Evrópudeildina ætli hann sér að starfa áfram hjá Arsenal

Aron Guðmundsson
Fimmtudaginn 6. maí 2021 19:30

GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Martin Keown, fyrrverandi leikmaður Arsenal, segir að núverandi knattspyrnustjóri liðsins, Mikel Arteta verði að stýra liðinu til sigurs í Evrópudeildinni ætli hann sér að halda áfram með liðið.

Keown, var á sínum tíma hluti af ósigrandi liði Arsenal og hann óttast að Arteta gæti farið sömu leið og Frank Lampard og José Mourinho en báðir knattspyrnustjóranir voru látnir fara frá félagi sínu á leiktíðinni.

„Ef þú horfir á Tottenham og Chelsea þá eru þau bæði fyrir ofan Arsenal í ensku úrvalsdeildinni og bæði lið skiptu um knattspyrnustjóra á tímabilinu,“ sagði Keown í viðtali á Talksport.

Gengi Arsenal hefur ekki verið nægilega gott og eini möguleiki liðsins á titli og Evrópusæti á næstu leiktíð felst í því að liðið verður að vinna Evrópudeildina.

Arsenal tekur á móti Villarreal í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar en fyrri leiknum lauk með 2-1 sigri Villarreal.

„Arsenal á við mörg stór vandamál að stríða, vandamál sem hægt er að laga með því að vinna Evrópudeildina,“ sagði Martin Keown, fyrrverandi leikmaður Arsenal á Talksport.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug