Lou Macari, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur verið duglegur við að hjálpa þeim sem minna mega sín í gegnum tíðina.
Macari hefur haldið úti gistiskýli fyrir heimilislausa í Stoke undanfarin fjögur ár en var gert að loka vegna þess að skýlið var ekki talið nægilega öruggt með tilliti til Covid-19 heimsfaraldursins.
Macari dó ekki ráðalaus og aðlagaði starfsemi skýlisins að tilmælum stjórnvalda í Bretlandi. Hann kom upp fullt af smáhýsum inn í vöruhúsi, smáhýsin eru upphituð, með rúmi, sjónvarpi og hvert smáhýsi er númerað svo einstaklingar sem sæki þjónustuna geti lagt fram heimilisfang er þeir sækja um vinnu.
Macari spilaði yfir 400 leiki fyrir Manchester United á sínum tíma.