fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
433Sport

Ekkert smit hjá leikmanni Selfoss – Fór í próf í dag

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 26. júní 2020 20:32

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikmaður Selfoss sem óttaðist að vera með kórónuveiruna er ekki með hana. Þetta staðfesti sýnataka hjá henni í dag.

433.is greindi frá því fyrst allra í dag að grunur væri um smit hjá leikmanni í kvennaliði Selfoss.

Smit kom upp í efstu deild kvenna í gær þegar einn leikmaður Breiðabliks greindist með veiruna. Fjöldi fólks er í sóttkví vegna þess.

Selfoss og Breiðablik áttust við 18 júní degi eftir að umræddur leikmaður Breiðabliks kom heim til landsins. Hún fór í próf fyrir veirunni á Keflavíkurflugvelli við heimkomu og ekkert smit greindist í henni. Hún fór í annað próf í gær og greindist með smit.

Umræddur leikmaður Selfoss hafði fundið fyrir einkennum sem líkjast kórónuveirunni og samkvæmt heimildarmanni er hún talsvert veik. Hún er hins vegar ekki með COVID-19.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær

Sjáðu stórkostlegt tilþrif Mbappe í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“

Gylfi brattur eftir sigur á uppeldisfélaginu – „Auðvelt að setja það til hliðar“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“

Sjáðu umræðurnar sem sköpuðust hér á landi í kvöld – „Greindarskerti maður“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu

Byrjunarlið Vals og FH: Markmannsbreyting hjá Hafnfirðingum – Gylfi byrjar gegn uppeldisfélaginu
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð

Ten Hag mun lækka duglega í launum verði hann áfram á næstu leiktíð