fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
433Sport

KSÍ dælir 100 milljónum í félögin

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 29. maí 2020 15:49

Guðni Bergsson er fyrrum formaður KSÍ og býður sig nú fram að nýju.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fundi stjórnar 28. maí var fjallað um fjármál knattspyrnuhreyfingarinnar í ljósi Covid-19. Formaður KSÍ, Guðni Bergsson, kynnti aðgerðir til stuðnings við aðildarfélög KSÍ í samræmi við umræðu á fyrri stjórnarfundum. Stjórn KSÍ samþykkti að greiða út 100 milljónum króna af eigin fé sambandsins til aðildarfélaga KSÍ. Öll aðildarfélög KSÍ, bæði félög með barna og unglingastarf og félög án þess, fá þar að auki niðurfellingu ferðaþátttökugjalds og þátttökugjalds (skráningargjalds), alls tæpar 20 milljónir.

Bókunina má sjá hér að neðan. Smellið hér til að skoða fundargerðina í heild sinni.

Bókun stjórnar 28. maí 2020:

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur allt frá því samkomubann var fyrirskipað þann 16. mars sl. unnið sérstaklega að hagsmunagæslu fyrir aðildarfélög KSÍ og að greiningu á aðstæðum þeirra í samvinnu við aðildarfélögin og Deloitte. Hagsmunagæslan hefur m.a. falist í samskiptum við ríkið og áskorun um breytingar á launaúrræðum og hlutabótaleið ríkisins. Einnig hefur verið barist fyrir auknu framlagi til íþróttahreyfingarinnar, sem var hækkað í fyrstu atrennu úr 250,0 mkr. í 450,0 mkr.

Þá hefur KSÍ óskað eftir því við FIFA og UEFA að alþjóðasamböndin grípi til aðgerða með sérstökum framlögum sem knattspyrnusamböndum yrði m.a heimilt að greiða til aðildarfélaga. Þessi framlög kæmu þá til viðbótar fyrirframgreiddum rekstrarframlögum alþjóðasambandanna sem gert er ráð fyrir í framtíðarrekstraráætlunum KSÍ.

Einnig hefur stjórn KSÍ samþykkt áskorun um að sveitarfélögin í landinu leggi íþróttahreyfingunni aukið lið m.a. með tilliti til barna- og unglingastarfs og mikilvægi þess í þeirri viðspyrnu sem nauðsynleg er að loknu samkomubanni. Er vonast eftir aðgerðum sveitarfélaga í þessu sambandi.

Öllum er ljóst að nauðsynlegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda hafa haft í för með sér verulegt tjón fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Einnig hafa tekjur frá styrktar- og samstarfsaðilum hrunið vegna efnahagsástandsins. Þrátt fyrir framlag ríkissjóðs til íþróttafélaga og aðgerðir á grunni svonefndra hlutastarfareglna þá duga þær aðgerðir skammt þegar horft er til heildartekjutaps félaganna.

Samkvæmt 7. grein laga KSÍ fer stjórn KSÍ með æðsta vald í málefnum sambandsins á milli ársþinga. Í ljósi þess að umboð stjórnar er á grundvelli samþykktrar fjárhagsáætlunar ársþings KSÍ þá er óhjákvæmilegt að stjórn KSÍ grípi til fordæmalausra aðgerða í því skyni að liðsinna félögum sem eru aðilar að knattspyrnusambandinu. Sú aðgerð felur í sér verulega breytingu á fjárhagsáætlun ársins. Hafa verður einnig í huga að aðgerðir vegna Covid-19 hafa haft veruleg áhrif á fjárhag KSÍ og ekki ljóst hver þau áhrif endanlega verða, m.a. vegna frestunar landsleikja og óvissu um nýja leikdaga ásamt mögulegum takmörkunum á fjölda áhorfenda. Einnig hefur verið horft til álits starfshóps um æskilegt eigið fé KSÍ. Stjórnin hefur unnið ákveðnar sviðsmyndir um möguleg áhrif ákvarðana UEFA varðandi umspilsleiki A landsliðs karla og leiki í Þjóðadeildinni, en ekki liggur fyrir hvenær þau mál skýrast endanlega.

Með vísan til alls framangreinds þá hefur stjórn KSÍ samþykkt á fundum sínum 2., 8. apríl og 28. maí eftirfarandi aðgerðir í þágu aðildarfélaganna:

Að flýta greiðslum til félaga í Pepsi Max deild karla vegna sjónvarpsréttar – alls að fjárhæð 52,8 mkr. Staðfest á fundi stjórnar 2. apríl 2020.
Að flýta greiðslum til félaga í neðri deildum vegna barna- og unglingastyrks – alls að fjárhæð 43,0 mkr. Samþykkt á stjórnarfundi 8. apríl 2020.
Niðurfelling á gjaldi vegna endurskráningar samninga vegna Covid-19. Samþykkt á fundi fjárhags- og endurskoðunarnefndar KSÍ í apríl 2020.
Niðurfelling á þátttökugjöldum (100.000.- á hvert lið meistaraflokka, samtals 11.600.000.-) og ferðajöfnunargjaldi (75.000.- pr. skráð lið í meistaraflokki, samtals um 8.250.000.-). Samþykkt á stjórnarfundi 28. maí 2020.
Úthlutun til aðildarfélaga, kr. 100 milljónir af eigin fé KSÍ til að koma til móts við fjárhagslegt tjón sem félögin hafa orðið fyrir vegna Covid-19 faraldursins. Samþykkt á stjórnarfundi 28. maí 2020.
Skipting þeirrar úthlutunar sem nefnd er hér að ofan í 5. lið er framkvæmd á grundvelli reiknilíkans sem var hannað og notast við fyrir útgreiðslu sérstaks EM-framlags 2016 og HM-framlags árið 2018. Í því líkani er félögum skipt upp í tvo flokka. Annars vegar félög með barna- og unglingastarf og hins vegar félög án þess.

Félögin með unglingastarf, sem eru alls 46, fá 100 mkr. úthlutun frá KSÍ sem skiptast eftir gefnum stigum sem miðast við stöðu í deildum karla og kvenna á tímabilunum 2019 og 2020.

Öll aðildarfélög KSÍ, bæði félög með barna og unglingastarf og félög án þess, fá þar að auki niðurfellingu ferðaþátttöku- og þátttökugjalds (skráningargjalds), alls tæpar 20 milljónir.

Knattspyrnusambandið mun eftir sem áður halda áfram hagsmunagæslu sinni og styðja eftir megni við aðildarfélög sín. Þess má geta í því sambandi að á undanförnum þremur árum, að fyrrgreindum aðgerðum meðtöldum hefur sambandið nú greitt út til aðildarfélaganna um 700,0 mkr ásamt því að standa straum af öllum dómarakostnaði meistaraflokka á Íslandsmótum sem nemur um 480,0 mkr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“

Jóhann Berg leyfir sér að dreyma – „Við eigum fjóra bikarúrslitaleiki eftir“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling

Urðar yfir Bruno Fernandes – Kallar hann rottu og vesaling
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“

Kristján segir dómara landsins skíthrædda við Víkinga – „Þetta er bara galið“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool

Var aldrei nálægt samkomulagi við Liverpool
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Nú ólíklegt að hann taki við Liverpool og annað enskt félag komið inn í myndina

Nú ólíklegt að hann taki við Liverpool og annað enskt félag komið inn í myndina
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Ansi óvæntir orðrómar um Grealish

Ansi óvæntir orðrómar um Grealish
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Athyglisverð mynd kemur fram í sviðsljósið – Átti Manchester United að detta úr leik í gær?

Athyglisverð mynd kemur fram í sviðsljósið – Átti Manchester United að detta úr leik í gær?