PUMA hefur staðfest stóran samning við KSÍ, þetta var staðfest í fréttatilkynningu nú í morgun.
Skömmu síðar fóru að leka myndir af treyjunni á veraldarvefinn en Puma virðist hafa birt treyjuna fyrir slysni. Búninginn átti að frumsýna í júlí þegar fundur um málið átti að vera. Puma hefur eytt myndunum af vefsíðu sinni en þær má enn finna á Google.
Meira:
Er þetta nýr búningur íslenska landsliðsins? – „Landvættastemmning í gangi“
Þannig birti Puma frétt með mynd af Guðna Bergssyni og starfsmanni Puma ásamt treyju sem gæti verið nýr búningur Íslands.
„Accidental frumsýning á KSÍ lógóinu right here. Einhver landvættastemmning í gangi. Áhugavert;“ skrifar Andri Ólafsson fyrrum fréttamaður á Twitter.
Mikil umræða hefur skapast á Twitter um málið og allt það helsta má sjá hér að neðan.
Landsliðin komin í Puma. Soldið eins og unglingur sem fær alvöru tískuföt í fyrsta sinn og þarf ekki lengur að vera í flauelsbuxum af frænda sínum og dóti sem einhver prjónaði á hann
— Bergur Ebbi (@BergurEbbi) May 26, 2020
Við spilum svo oft við Króata. Við elskum þá og viljum vera þeir #fotboltinet pic.twitter.com/Em8tvWvDai
— Hawk Football Artist (@hawk_attacks) May 26, 2020
Gammur, griðungur, dreki, bergrisi. Nett. pic.twitter.com/LQWXO33xJO
— Andri Ólafsson (@andriolafsson) May 26, 2020
Nokkuð elegant, verð ég að segja. En, skellur fyrir KSÍ að fá ekki flotta fundinn loksins þegar jákvæðni mun væntanlega ríkja um treyjuna. https://t.co/nlYmzUXmCe
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) May 26, 2020
Accidental frumsýning á KSÍ lógóinu right here. Einhver landvættastemmning í gangi. Áhugavert. https://t.co/qQqSdjwEfO
— Andri Ólafsson (@andriolafsson) May 26, 2020
Ég vissi alltaf að ég myndi ná að losa mig við þessar gömlu sætisáklæðisrúllur! #fotboltinet pic.twitter.com/FRVTlAmzzc
— Guðmundur Egill (@gudmegill) May 26, 2020
Þetta lúkkar mjög vel. Hollands vibes.
— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) May 26, 2020
Herr Bergsson Sollen wir zusammen ein Foto machen? Es geht nicht ins internet! Es ist für mich privat.
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) May 26, 2020