Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, verður frá í þrjá til fimm mánuði eftir að hafa skaddað liðbönd í hné í leik gegn Atletico Madrid í gær. Marca greindi frá.
Búist var við því að meiðsli Pique gætu verið alvarleg og nú er það orðið ljóst að hann skaddaði liðbönd í hægra hné í gær.
Barcelona tapaði leiknum 1-0 og er þetta þriðja tap liðsins í 8 leikjum.
Fjarvera Pique, sem er einn besti varnarmaður spænsku deildarinnar, mun því auka áhyggjur knattspyrnustjórans Ronald Koeman sem tók við Barcelona fyrir tímabilið.