fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Mikael hafði betur í Íslendingaslag – Viðar Ari með stoðsendingu í sigri Sandefjord

Aron Guðmundsson
Laugardaginn 24. október 2020 18:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mitdjylland vann 2-3 útisigur á Bröndby i í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Mikael Neville var í byrjunarliði Midtjylland og spilaði 74 mínútur. Hjörtur Hermannsson kom inn á sem varamaður í liði Bröndby á 82. mínútu.

Bröndby komst í stöðuna 2-0 með mörkum á 16. og 51. mínútu.

Anders Dreyer minnkaði muninn fyrir Midtjylland með marki á 62. mínútu eftir stoðsendingu frá Mikael.

Á 73. mínútu jafnaði Pione Sisto leikinn fyrir Midtjylland með marki.

Á 94. mínútu varð Marvin Schwabe fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Fleiri mörk voru ekki skoruð, 2-3 sigur Midtjylland staðreynd

Midtjylland er eftir leikinn í 1. sæti deildarinnar með 13 stig eftir 6 leiki. Bröndby er í 2. sæti með 12 stig eftir 6 leiki.

 

Í norsku úrvalsdeildinni tóku lærisveinar Jóhannesar Harðarsonar í Start á móti íslendingaliðinu Sandefjord. Leikurinn endaði með 0-1 sigri Sandefjord.

Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Sandefjord og átti stoðsendingu í eina marki leiksins sem kom á 52. mínútu. Emil Pálsson kom inn á sem varamaður í liði Sandefjord á 83. mínútu.

Start er í 14. sæti deildarinnar með 19 stig eftir 22 leiki. Sandefjord er í 10 sæti með 26 stig eftir 22 leiki.

Bröndby 2 – 3 Midtjylland (Danska úrvalsdeildin)
1-0 Andreas Bruus (’16)
2-0 Jesper Lindstrom (’51)
2-1 Anders Dreyer (’62)
2-2 Pione Sisto (’73)
2-3 Marvin Schwabe (’90+4)

Start 0 – 1 Sandefjord (Norska úrvalsdeildin)
0-1 Harmeet Singh

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug