fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Norðmenn vilja reka íslenska þjóðhetju úr starfi – „Eins og að trúa á jólasveininn“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 9. október 2020 08:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er enginn tilgangur fyrir hann að halda áfram,“ segir á forsíðu Dagbladet í Noregi eftir að liðið féll úr leik í umspili um laust sæti á Evrópumótinu næsta sumar. Fjölmiðlar í Noregi vilja að Lars Lagerback, sem eitt sinn var óskabarn íslensku þjóðarinnar verði rekinn úr starfi.

Eftir gott gengi hefur Noregur nú tapað tveimur heimaleikjum í röð og vilja margir að Lagerback verði sagt upp störfum. Noregur telur sig vera með gullkynslóð í höndunum og það að komast ekki inn á Evrópumótið er brottrekstrarsök.

Samningur Lagerback við norska knattspyrnusambandið er til ársins 2022 og forráðamenn þess ætla ekki að gera breytingar. „Að trúa því að hann komi þessu liði inn á HM þegar hann komst ekki inn á EM, er eins og að trúa á jólasveininn,“ segir í frétt Dagbladet.

Lagerback vann hug og hjörtu Íslendinga þegar hann tók við íslenska landsliðinu og stýrði því inn á sitt fyrsta stórmót árið 2016 ásamt Heimi Hallgrímssyni.

„Lagerback er hræðilegur þjálfari, ég veit ekki hvers vegna Noregur réð hann tils tarfa. Hann var bara heppinn með íslenska liðið,“ skrifar einn stuðningsmaður Noregs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði

Athæfi Messi í nótt vekur athygli – Sjáðu hvað hann gerði
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug