fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
433Sport

Vignir vekur mikla athygli fyrir öskrin – „Í sjónvarpið með þennan mann“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 25. ágúst 2020 14:36

Skjáskot úr myndbandinu sem um ræðir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brot úr beinni lýsingu VogarTV frá leik Þróttar Vogum gegn Dalvík/Reyni hefur vakið mikla athygli á netinu undanfarin sólarhring.

Það sem vakti hvað mesta athygli eru tilþrifin hjá manninum sem lýsti leiknum. Vignir Már Eiðsson er sagður vera maðurinn sem var á bakvið lýsinguna en ástríða hans þegar annað mark Þróttar var skorað skein í gegn.

Daníel nokkur deildi myndbandi á Twitter þar sem heyra mátti Vigni öskra af ástríðu þegar markið var skorað. „Sigurður Gísli fer FRAMHJÁ einum, framhjá ÖÐRUM, HANN ER Í DAUÐAFÆRI! MAAAAARK! ANNAÐ SJÁLFSMARK! ER ÞETTA ANNAÐ SJÁLFSMARK ÞARNA?!“ sagði Vignir þegar markið var skorað.

„Hvaða rólyndismaður var að lýsa á Vogar TV í gær?“ spurði Daníel, að öllum líkindum í kaldhæðni, þegar hann deildi myndbandinu. „Hann þarf að sýna aðeins meiri lit í næstu útsendingu.“

Þá segir Eyþór nokkur að allir ættu að fá að kynnast Vigni, hann sé magnað eintak. „Væri nær lagi að fá raunveruleikasjónvarp um hann. Það yrði veisla!“ Þá tekur Andri nokkur í sama streng. „Í sjónvarpið með þennan mann ekki seinna enn á morgun.“

Hér í myndbandinu fyrir neðan má heyra tilþrif Vignis:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall
433Sport
Í gær

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið

Arsenal vill leikmann Brentford til að fylla skarðið
433Sport
Í gær

Krotar undir þriggja ára samning

Krotar undir þriggja ára samning
433Sport
Í gær

Jón Þór opnar sig um brottreksturinn: Fundað með honum tveimur vikum áður – „Var spurður að því hvort ég treysti mér í þetta“

Jón Þór opnar sig um brottreksturinn: Fundað með honum tveimur vikum áður – „Var spurður að því hvort ég treysti mér í þetta“
433Sport
Í gær

Skagamenn staðfesta ráðninguna á Lárusi Orra

Skagamenn staðfesta ráðninguna á Lárusi Orra
433Sport
Í gær

Draumur Ægis rættist þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt – „Lífið verður ekki mikið betra en þetta“

Draumur Ægis rættist þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt – „Lífið verður ekki mikið betra en þetta“