fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ólafur útskýrir hvers vegna hann hafnaði stóru starfi í Danmörku

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2020 16:00

Ólafur Kristjánsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti athygli á síðasta ári þegar Ólafur Kristjánsson þjálfari FH í Pepsi Max-deild karla hafnaði stóru starfi í Danmörku.

Ólafi var boðið að taka við þjálfun Esbjerg sem leikur í efstu deild þar í landi. Ólafur hefur reynslu af þjálfun í Danmörku eftir að hafa starfað hjá Nordsjælland og Randers.

Ljóst er að Ólafur hefur gott orðspor þar í landi og misjafnt gengi með FH hafði ekki áhrif á það að danska liðið vildi Ólaf aftur út.

„Ég skuldbatt mig við FH þegar ég kom á sínum tíma. Ég er og hef verið með liðið úti í miðri á og ætla mér að komast yfir þá á. Ég er trúr þegar kemur að þessum hlutum,“ sagði Ólafur í samtali við Hjörvar Hafliðason í Dr. Football i gær.

Ólafur er á leið inn í sitt þriðja tímabil með FH eftir að hann kom heim frá Danmörku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina