fbpx
Fimmtudagur 11.desember 2025
433Sport

Fyrrverandi leikmaður Selfoss sakaður um ítrekaðar nauðganir: „Ólíklegt að óeðli hans hafi slokknað á Íslandi“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 6. febrúar 2020 10:23

Sarr og Solskjær árið 2016.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Babacar Sarr, fyrrverandi leikmaður Selfoss, er sakaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn konum. Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, er flæktur inn í  mál hans og sömuleiðis hans besti vinur, umboðsmaðurinn Jim Solbakken.

Babacar Sarr er 28 ára gamall knattspyrnumaður frá Senegal, en hann lék hér á landi árin 2011 og 2012. Hann var síðan seldur til Noregs og lék með Start og Sogndal. Þegar Sarr var leikmaður Sogndal var hann fyrst sakaður um nauðgun. Á meðan málið var til skoðunar var það Ole Gunnar Solskjær, núverandi stjóri Manchester United, sem keypti hann til Molde. Jim Solbakken, besti vinur Solskjær hefur verið umboðsmaður Sarr.

Solbakken og Solskjær stofnuðu saman skrifstofu í kringum umboðsmennsku en Solskjær þurfti að selja hlut sinn þegar hann varð þjálfari hjá varaliði United árið 2008.

Árið 2016, þegar Sarr var leikmaður Molde, stigu fjórar konur fram og sökuðu Sarr um að hafa nauðgað sér. Ein af þessum konum varð ófrísk og eignaðist barn sem hún og Sarr eiga saman í dag. Hún segist hafa orðið ófrísk þegar Sarr nauðgaði henni.

Árið 2018 var Sarr sýknaður en skipað að greiða fórnarlömbum bætur sem ákæruvaldið áfrýjaði. Sarr neitaði að gefa blóðsýni og var því málinu frestað og átti Sarr að mæta fyrir dóm í febrúar á síðasta ári.

Rannsókn málsins hélt áfram en Sarr mætti ekki í dómsal og fór svo að gefin var út handtökuskipun á hendur honum. Um þetta leyti kom í ljós að Molde hafði ákveðið að rifta samningi við Sarr og gat hann því yfirgefið landið. Nokkrum dögum síðar var Sarr mættur til Rússlands þar sem hann samdi við Yenisey Krasnoyarsk. Solbakken, besti vinur Solskjær, sá um að koma félagaskiptunum í gegn.

Það sem flækti málið fyrir rannsóknina í Noregi er að ekki er framsalssamningur á milli Rússlands og Noregs. Yfirvöld í Noregi gátu því ekkert gert. Í júní á síðasta ári var svo alþjóðleg handtökuskipun gefin út af Interpool, nú átti að klófesta Sarr og láta hann svara til saka.

Fjórum klukkustundum eftir að Interpool gaf út handtökuskipun hafði Solbakken náð að finna nýtt félag fyrir Sarr, hann samdi nú við Damac í Sádí Arabíu. Þar má Interpool ekkert gera og gat því Sarr áfram verið í friði, án þess að svara til saka.

Samningur Sarr við Damac rann út í upphafi árs og er hann því án félags í dag. Norskir fjölmiðlar sögðu svo frá því í gær að ný kæra hefði verið lögð fram þar í landi. Þar sakar kona miðjumanninn frá Senegal um nauðgun. Tvö mál eru því í kerfinu í Noregi þar sem Sarr er sakaður um nauðgun en óvíst er hvort hægt verði að fá Sarr til að mæta og svara til saka. Kæran sem var lögð fram fyrir stuttu varðar atvik frá því í nóvember árið 2018.

Íslendingar ræða þetta mál á samfélagsmiðlum enda Sarr fyrrum leikmaður Selfoss. ,,WTF? Vissi ekki að Babacar væri svona fokkings viðbjóður!,“ skrifar Einar Matthías sem er Selfyssingur.

Eiríkur Rúnarsson veltir fyrir sér hvort Sarr hafi brotið af sér hér á landi. ,,Mikið þykir mér ólíklegt að óeðli hans hafi bara slokknað á Íslandi. Tölfræðin segir að hér séu möguleg fórnarlömb. Vonandi ekki samt.“

Óskar Eiríksson vonar að enginn fórnarlömb séu á Íslandi. ,,Að þessi viðbjóður hafi spilað á Selfossi. Vonandi engin fórnarlömb hérlendis.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Haaland kláraði Real Madrid – Arsenal í stuði í Belgíu

Haaland kláraði Real Madrid – Arsenal í stuði í Belgíu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Segir í fyrsta sinn frá ástæðunni af hverju hann hætti svona snemma

Segir í fyrsta sinn frá ástæðunni af hverju hann hætti svona snemma
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Viktor Daði byrjaði í fræknum sigri danska liðsins á Spáni

Viktor Daði byrjaði í fræknum sigri danska liðsins á Spáni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Kærasta Erling Haaland að bugast á þessu atriði í fari hans – „Ég er orðin svo þreytt á þessu“

Kærasta Erling Haaland að bugast á þessu atriði í fari hans – „Ég er orðin svo þreytt á þessu“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Meiðslin halda áfram að herja á Arsenal

Meiðslin halda áfram að herja á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Blikar halda enn í vonina – „Risagulrót og það sem við stefnum á“

Blikar halda enn í vonina – „Risagulrót og það sem við stefnum á“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stjarnan sækir markvörð frá Augnablik

Stjarnan sækir markvörð frá Augnablik
433Sport
Í gær

Býður Salah að koma fyrr vegna stormsins í kringum hann

Býður Salah að koma fyrr vegna stormsins í kringum hann