Laurent Koscielny, fyrirliði Arsenal, er á milli tannanna á fólkiu þessa stundina en hann vill komast burt.
Kosciuelny hefur lengi spilað með Arsenal en hann neitaði nú að ferðast með félaginu til Bandaríkjanna.
Frakkinn vill að Arsenal leyfi sér að komast burt en hann á eitt ár eftir af samningi sínum í London.
Arsenal vill halda Koscielny í eitt ár til viðbótar og er ekki reiðubúið að selja hann ódýrt í sumar.
Nýjasta útspil Koscielny vekur athygli en hann breytti þá Instagram reikningi sínum.
Koscielny setti svokallaðan ‘Emoji’ við nafn Arsenal á Instagram síðu sína en þar má sjá tvö augu sepööm gefa eitthvað í skyn.77o7p
Hvað Koscielny er að reyna að segja er óvíst en dæmi nú hver fyrir sig.