fbpx
Fimmtudagur 25.desember 2025
433Sport

Stuðningsmenn United grátbiðja Solskjær að versla norska undrabarnið

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 24. október 2019 11:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ný stjarna komin upp á sjónarsviðið í knattspyrnunni en sá strákur ber nafnið Erling Braut Haland. Haland er 19 ára gamall Norðmaður en hann skrifaði undir samning við RB Salzburg fyrr á þessu ári.

Haland kom til félagsins frá Molde í Noregi þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 deildarleikjum sem táningur. Strákurinn er einn allra efnilegasti leikmaður heims og er byrjaður að raða inn mörkum með Salzburg.

Norðmaðurinn hefur raðað inn mörkum frá Salzburg og skoraði tvö gegn Napoli í Meistaradeildinni í gær.

Stuðningsmenn Manchester United grátbiðja félagið nú að kaupa norska framherjann, frekar en Mario Mandzukic sem er orðaður við félagið.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United þarf hins vegar ekki að sjá mikið af Haland. Hann þjálfaði hann í Molde og gaf honum sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Samband þeirra er gott og telja ensk blöð að Solskjær hafi bestu spilin á hendi. Það sem talið var að gæti unnið gegn United er að Erling er sonur Alf-Inge Håland, ferill hans fór í vaskinn eftir gróft brot frá Roy Keane, þá fyrirliða United. Alf-Inge Håland lék þá með Leeds.

,,Það væri gaman að sjá hann í United,“
sagði faðir hans, Alfe-Inge Haland og slökkti þar með í þeim sögum.

,,Það er mikilvægt að dvelja ekki í fortíðinni, ég er mjög rólegur gagnvart þessu atvik. Flestum dreymir um að spila í ensku úrvalsdeildinni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni

Sjáðu myndbandið sem er á allra vörum – Blóðheitir og fengu hrokafullt svar frá stórstjörnunni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo

Útlit fyrir að Manchester verði áfangastaður Semenyo
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hætt við leikinn eftir allt saman

Hætt við leikinn eftir allt saman
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar

Hugsanlegur slagur milli Real Madrid og Manchester City næsta sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af

Þetta eru leikirnir sex sem Bruno Fernandes missir af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar

Amorim ætlar að umturna þessari stöðu næsta sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni

Andlát vinsæls áhrifavalds til rannsóknar – Féll úr íbúð sinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

Endrick á leið til Frakklands

Endrick á leið til Frakklands