fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
433

Zlatan sá leikmann sem er of góður fyrir MLS

Victor Pálsson
Föstudaginn 16. ágúst 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Zlatan Ibrahimovic, leikmaður LA Galaxy, segir að nýr leikmaður liðsins, Cristian Pavon, sé of góður fyrir MLS deildina.

Pavon kom til Galaxy fyrr í sumar og spilaði sinn annan leik í góðum 2-0 sigri á Dallas í vikunni.

Pavon er 23 ára gamall vængmaður en hann á að baki 11 landsleiki fyrir Argentínu. Hann er í láni hjá Galaxy frá Boca Juniors í Argentínu.

,,Hann er mjög góður. MLS mun ekki fá að njóta hans mjög lengi. Við ættum að njóta hans á meðan við höfum hann,“ sagði Zlatan.

,,Þegar þú ert með svona leikmann þá þarftu ekki að segja of mikið. Þú talar á vellinum og reynir að gera þitt besta.“

,,Hann veit hvað hann er að gera. Þetta var hans annar leikur og hann var bestur á vellinum.“

,,Ég hefg spilað með mörgum leikmönnum og ég sé þegar leikmaður gerir gæfumuninn og það er það sem hann gerir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United

Sancho hefur engan áhuga á að spila fyrir Manchester United
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Albert er veikur og getur ekki tekið þátt

Albert er veikur og getur ekki tekið þátt
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arteta neitaði að staðfesta sögusagnirnar – ,,Við þurfum að sjá til“

Arteta neitaði að staðfesta sögusagnirnar – ,,Við þurfum að sjá til“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Harðneita að þessi ungi maður sé 14 ára gamall: Fékk óvænt tækifæri fyrir helgi – ,,Hvað er hann með mörg vegabréf?“

Harðneita að þessi ungi maður sé 14 ára gamall: Fékk óvænt tækifæri fyrir helgi – ,,Hvað er hann með mörg vegabréf?“
433Sport
Í gær

England: Burnley þarf á kraftaverki að halda – Jóhann Berg lagði upp

England: Burnley þarf á kraftaverki að halda – Jóhann Berg lagði upp
433Sport
Í gær

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“

Ten Hag sannfærður um að hann verði áfram við stjórnvölin – ,,Ég gefst ekki upp“