Fáum dylst að það hefur andað köldu á milli Bankasýslu ríkisins og bankaráðs Landsbankans að undanförnu vegna Borgunarmálsins svonefnda. Meirihluti bankaráðsmanna, þar á meðal formaðurinn, tilkynnti í síðasta mánuði að þeir myndu ekki gefa kost á sér til endurkjörs og sökuðu Bankasýsluna um að veitast „harkalega að bankanum af óbilgirni sem er síst til þess fallið að auka traust.“ Sögðu bankaráðmennirnir að Bankasýslan hefði „gengið skrefi of langt“ með því að krefjast þess að bankastjóranum yrði sagt upp störfum.
Venju samkvæmt hefur formaður bankaráðs þakkað Bankasýslunni, sem heldur utan um 98% hlut ríkisins í bankanum, fyrir samstarfið þegar hann flytur ávarp sitt á aðalfundi. En ekki í þetta skiptið. Á aðalfundi bankans í liðinni viku minntist Tryggvi Pálsson, fráfarandi bankaráðsformaður, ekkert á Bankasýsluna heldur þakkaði aðeins „Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands fyrir góð og fagleg samskipti.“