Fjórir af fimm stjórnarmönnum í rithöfundasambandinu fengu listamannalaun í tólf mánuði. Formaðurinn fékk hins vegar ekki laun nema í níu mánuði.
Þegar velja þarf fólk í nefndina sem úthlutar listamannalaunum er það hlutverk stjórnar rithöfundasambandsins að sjá um valið. Við ákveðnar aðstæður þætti þetta ef til vill ekki besta fyrirkomulagið. Einhver kynni jafnvel að ganga á vald skáldagyðjunnar og telja þetta hagsmunaárekstur af verstu sort. Því fer hins vegar fjarri og sannast það best á því að formaðurinn fékk minnst í sinn hlut, eða bara níu mánaða laun.