fbpx
Mánudagur 06.maí 2024
Fréttir

Sanna kom að móður sinni liggjandi á eldhúsgólfinu: „Hún heldur að hún sé að deyja“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 13. apríl 2018 10:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sanna Magdalena Mörtudóttir, einn frambjóðanda Sósíalistaflokksins í borgarstjórnarkosningum, segir frá upplifun sinni af fátækt í kynningu á framboðinu. Hún ólst upp hjá einstæðri móður sem vann í tveimur störfum, sem leiðbeinandi á leikskóla og eftir fullan vinnudag skúraði hún leikskólann. Þrátt fyrir það voru þær mæðgur oft svangar.

„Sama hvað, þá dugðu launin aldrei út mánuðinn, ekki einu sinni fyrir helstu nauðsynjum. Á tímabili þegar hún skúraði ekki leikskólann, vann hún við þrif í Kaupþingi, bláfátæk svöng kona að þrífa fyrir ríku viðskiptamennina. Ég held að margir geri sér raunverulega ekki grein fyrir því að hér á landi sé fólk sem á ekki eina einustu krónu og getur ekki keypt sér mat. Leit að klinki er eftirminnileg úr minni æsku. Þá var leitað í öllum vösum og töskum og sófapullum snúið við í von um að finna klink. Sófinn líkt og önnur húsgögn fengum við gefins, því við höfðum ekki efni á slíku. Einu sinni áttum við mæðgur bara eitthvað tuttuguogníu krónur og það eina sem við höfðum efni á, var rúlla af póló myntum sem við skiptum á milli okkar. Þarna er búið að tæma alla reikninga, hjóla með allar flöskur og fara í Mæðrastyrksnefnd. Við lifðum dag frá degi en stundum reddaðist þetta bara alls ekki og við borðuðum ekkert í langan tíma,“ segir Sanna.

Hún segir að þær mæðgur hafi um tíma ekki átt ísskáp, síma né þvottavél. „Þegar mamma fyllti út eyðublöð á skrifstofum, skildi hún síma, gsm og netfang eftir autt, því við höfðum ekki efni á þessum tækjum. Svo þegar veikindi áttu sér stað þurfti að labba í tíkallasíma til að tilkynna það en þá þarftu náttúrulega að eiga klink. Í veikindum hefur maður ekki heilsuna til að rölta út í síma en svona er þetta, það er rosalega mikið vesen sem fylgir því að vera fátækur. Eftir tæpa þriggja ára bið fengum við félagslega íbúð í efra Breiðholti, þá var ég tíu ára og við fluttum þá úr Austurbænum. Rúmu ári áður hafði birst viðtal við mömmu í Fréttablaðinu um okkur „mæðgur á götunni“ ásamt stórri mynd af okkur á blaðsíðu númer tvö. Þegar ég mætti í skólann daginn eftir, benti bekkjarbróðir minn í átt til mín í frímínútum og kallaði upphátt „hún býr á götunni“. Þá hugsaði ég með mér að tæknilega séð byggjum við ekki á götunni, við myndum fá að vera tímabundið hjá ömmu. Við yrðum samt húsnæðislausar ef við fyndum ekki íbúð á viðráðanlegu verði. Þarna var maður með þessa meðvitund, ný orðin níu ára og vissi að leigulistinn væri ekki að bjóða upp á neitt,“ segir Sanna.

Sanna segir móðir sín sé í dag á örorkubótum því fátæktin hafi bugað hana andlega. „Í dag er móðir mín á örorkubótum því fátæktin bugaði hana andlega, hversu ógeðslegt er það að kerfisbundið óréttlæti geri fólki þetta. Hef horft upp á hana í kvíðakasti þar sem hún heldur að hún sé að deyja, þetta er það sem streitan í kringum fátækt gerir fólki. Einu sinni kom ég að móður minni rænulítilli liggjandi á eldhúsgólfinu. Sama hvað ég gerði þá rumskaði hún ekki, ég endaði með að hringja á sjúkrabíl. Þegar hún rankar við sér á sjúkrahúsinu tjáir hún mér að hafa ekki borðað svo lengi, þess vegna hafi verið komið svona fyrir henni. Þar sem hún vildi ekki valda mér óþarfa áhyggjum, hafi hún ekki sagt mér frá því hversu slæmt ástandið væri,“ segir Sanna.

Sanna er í dag mannfræðingur með meistaragráðu en stórskuldug eftir námið: „Erfitt var að sinna vinnu samhliða námi og tíðum mígrenisköstum. Námslánin eru ekki raunhæf, sem rekur mann í gin annarra stofnanna, það er ekkert elsku mamma og pabbi í boði. Himinhá yfirdráttarheimild, Framtíðin lánasjóður í eigu GAMMA, Netgíró til að greiða fyrir mat og smálán er eitthvað sem maður þekkir vel. Ég hef tekið lán til að borga lán, það er nefnilega dýrt að vera blankur. Þetta gerir maður af þörf þrátt fyrir meðvitund um himinháa vexti. Mér finnst algjörlega út í hött að margir sem sitja við stjórnvölin hafa oft enga innsýn í reynslu almennings og lifa margir í algjörri forréttindabubblu. Fjármagnseigendur ættu ekki að hafa það vald að hagnast á viðkvæmri stöðu einstaklinga, gróði þeirra ætti ekki að byggja á örvæntingarneyð einstaklinga. Mannúðlegra kerfi er eitthvað sem ég vil sjá, þar sem ekki er komið fram við fólk eins og einnota vél sem má henda á haugana þegar hún hættir að virka.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skip Eimskips missti fimmtán gáma í sjóinn austan við Vestmannaeyjar og laskaðist – „Mannleg mistök“

Skip Eimskips missti fimmtán gáma í sjóinn austan við Vestmannaeyjar og laskaðist – „Mannleg mistök“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum