fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sviðsetning Loga

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. desember 2017 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, er gefinn fyrir sviðsetningu, eins og sýndi sig í fréttatíma Stöðvar 2 síðastliðið miðvikudagskvöld. Heimir Már Pétursson spjallaði við hann í þinghúsinu þar sem Logi sagði að hugmyndir nýrrar ríkisstjórnar um skattalækkun myndu ekki gagnast þeim tekjulægstu heldur þeim tekjuhæstu. Til að skýra mál sitt var Logi búinn að setja á borð hangikjöt og tvær appelsíndósir og sagði að þetta fengju þeir tekjulægri gengju hugmyndirnar eftir. Á öðru borði var búið að koma fyrir alls kyns krásum, hangikjöti, rauðvíni, sælgæti, ostum og öðru góðgæti, sem samsvara átti þeirri búbót sem ríkisstjórnin væri að færa þeim efnameiri. Ekki fylgdi sögunni hver hefði borgað þessar kræsingar, en varla var það Stöð 2. Líklegra er að Samfylkingin hafi tekið upp budduna. Ekki er svo vitað hvað varð um matinn eftir að fréttaliðið hvarf af vettvangi, hvort Samfylkingin settist að snæðingi eða lét Fjölskylduhjálpina njóta, eins og hefði verið vel við hæfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki