fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Hús Hrafns rifið: „Gaf föður mínum loforð áður en hann dó að móðir mín fengi að hafa þarna griðastað“

Hjartastaður fjölskyldunnar – Alfreð lofaði upp í ermina

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 19. október 2017 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómur er fallinn í máli Hrafns Gunnlaugssonar gegn Orkuveitunni sem snýst um sumarhús hans við Helluvatn í Reykjavík. Þetta hús og fleiri á sama stað standa innan vatnstökusvæðis höfuðborgarinnar og vill Orkuveitan því rýma svæðið á næstu árum. Hrafn telur hins vegar að húsið sé ekki fyrir neinum og þar að auki hafi fjölskyldan fengið loforð frá Orkuveitunni um áframhaldandi veru.

Borgin kaupir af Þórði í Klepp

Málið á sér aðdraganda 90 ár aftur í tímann, til dagsins 30. júní árið 1927, þegar landeigendur Elliðavatns seldu jörðina til Reykjavíkurborgar gegn vissum skilyrðum. Í þeim fólst meðal annars að fyrri eigendur fengju eins hektara svæði til að byggja á sumarhús og myndu þeir ekki greiða neina leigu fyrir afnotaréttinn. Þetta gilti ekki einungis fyrir þá sjálfa heldur einnig maka og börn á meðan þau lifðu.

Á þessum tíma stóðu forsvarsmenn Reykjavíkurborgar í því að byggja upp innviði og vatnsveitan var ein umfangsmesta framkvæmdin. Vatnsveita Reykjavíkur tók til starfa árið 1909 og var vatni veitt frá Elliðaánum og Gvendarbrunnum. Svæðið þar sem fyrrverandi eigendur jarðarinnar fengu að byggja sína bústaði er innan vatnstökusvæðis Gvendarbrunna.

Einn af þeim sem máttu reisa bústaði var Þórður Sveinsson, yfirlæknir við Kleppsspítala. Hann féll frá árið 1946 og erfðu þá sonur hans og tengdadóttir réttinn, þau Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður og Herdís Þorvaldsdóttir leikkona. Þau hófu byggingu á sumarhúsi á reitnum árið 1960 og var það fullklárað tveimur árum síðar. Árið 1998 féll Gunnlaugur frá og urðu þá Herdís og sonur þeirra, Hrafn Gunnlaugsson, aðaleigendur hússins. Aðrir fjölskyldumeðlimir áttu þó minni hlut í eigninni.

Munnlegt loforð Alfreðs

Í febrúarmánuði árið 2004 brann sumarhúsið til kaldra kola. Hrafn segir: „Það var sennilega íkveikja. Lögreglan hefur ekki enn fengið botn í það.“ Herdís og Hrafn stefndu á að byggja nýjan bústað á grunni þess brunna en áður en þau gerðu það föluðust þau eftir framlengingu á afnotarétti lóðarinnar. Þá hafði borgin sjálf nýverið afsalað eignarhaldi sínu á jörðinni til Orkuveitu Reykjavíkur.

Þann 24. maí sendi Herdís Guðjóni Magnússyni hjá Orkuveitunni bréf þar sem hún sagðist þurfa að vita hver réttur hennar væri áður en hún byggði nýtt sumarhús. Hún óskaði eftir því að afnotarétturinn yrði tryggður henni, börnum hennar og barnabörnum endurgjaldslaust. Þá ræddi hún persónulega við Alfreð Þorsteinsson, þáverandi stjórnarformann Orkuveitunnar, um málið. Alfreð staðfesti að það samtal hafi átt sér stað. Hann segir:

Alfreð: „Að vandlega skoðuðu máli tjáði ég Herdísi að ég vildi verða við þessari beiðni“

„Á sínum tíma ræddi Herdís við mig í nokkur skipti vegna fyrirætlana um endurbyggingu sumarhússins, en húsið sem þar stóð hafði orðið eldi að bráð. Að vandlega skoðuðu máli tjáði ég Herdísi að ég vildi verða við þessari beiðni og benti henni á að Hjörleifur Kvaran gengi frá málum sem þessum fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Vissi ég ekki betur en Herdís hefði haft samband við hann og að frá málinu hefði verið gengið.“ Guðmundur Þóroddsson, þáverandi forstjóri, staðfesti einnig að Alfreð hefði rætt við sig um málið og að það hefði litlu skipt þó Herdís fengi afnotin. Bústaðurinn væri hvort eð er í fjarsvæði vatnsverndar og neðan aðrennslisstrauma vatnstökusvæðisins.

Engir samningar voru þó undirritaðir en Herdís og Hrafn fengu byggingarleyfi frá borginni og reistu nýjan bústað vorið 2005, steinhús sem kostaði á bilinu 50–60 milljónir. En þetta var gegn stefnu Orkuveitunnar um fækkun bústaða á svæðinu og meðan á byggingunni stóð fékk Hrafn tilboð um leigusamning til fimm ára. Hrafn svaraði með tilboði um sölu á sanngjörnu verði en því var hafnað af Orkuveitunni. Þar sem barnabörn Þórðar voru enn á lífi stóð upprunalegi samningurinn enn þá og við það sat til ársins 2013.

Krafa Hrafns Gunnlaugssonar (Jón Steinar Gunnlaugsson hrl.)

Ótímabundinn afnotaréttur af lóð sem sumarhús hans stendur á við Helluvatn í Reykjavík.Til vara: 75 ára afnotaréttur af lóðinni.Orkuveitan greiði málskostnað.

Vilja tæma svæðið á 15 árum

Bæði Sverrir Þórðarson, síðasta eftirlifandi barn Þórðar, og Herdís létust árið 2013. Þá var samningurinn frá 1927 útrunninn og Hrafn einn með málið í fanginu. Ári seinna óskaði hann eftir að byggja viðbyggingu við bústaðinn en fékk synjun byggingarleyfis með vísun til umsagnar Orkuveitunnar. Orkuveitan sendi bréf á alla bústaðareigendur á svæðinu þar sem þeim var tjáð að afnotarétturinn yrði ekki endurnýjaður en eigendur fengju bæði tíma og aðstoð við að koma bústöðunum af svæðinu.

Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, segir:

„Við vonumst til að bústaðir hverfi þarna smátt og smátt á næstu fimmtán árum … en við förum ekki fram með neinu offorsi í því.“ Hann fellst ekki á það að bústaður Hrafns sé í fjarsvæði vatnsverndar heldur grannsvæði eins og kemur fram í svæðisskipulagi frá árinu 2015. „Ekki er gert ráð fyrir byggð á slíkum svæðum vegna almannahagsmunanna sem í vernd vatnsbóla felst.“

Krafa Orkuveitu Reykjavíkur (Elín Smáradóttir hdl.)

Sýkna af öllum kröfum Hrafns.Til vara: 15 ára afnotaréttur af lóðinni, bundinn við Hrafn sjálfan.Hrafn greiði málskostnað.

Varnarlaus gegn offorsi Orkuveitunnar

Hrafn tók þetta hins vegar ekki gilt og stefndi Orkuveitunni þann 5. október árið 2015 með kröfu um ótímabundinn afnotarétt hans á lóðinni. Þessa kröfu byggði hann á því munnlega samþykki sem móðir hans hafði fengið hjá Alfreð ellefu árum fyrr. Hann segir:

„Móðir mín vildi byggja þarna hús og fékk leyfi frá Orkuveitunni og Reykjavíkurborg. Það lenti á mér að hjálpa henni með þetta. Ég gaf föður mínum loforð áður en hann dó að móðir mín fengi að hafa þarna griðastað áfram. Mig óraði ekki fyrir því að húsið myndi brenna. Þetta er hjartastaður fjölskyldunnar.“

Niðurstaða héraðsdóms

Hrafni veitt afnot af lóðinni til 15 ára.Bundið við hann sjálfan.Málskostnaður skiptist á aðilana.

Þrjú systkini Hrafns, þau Tinna, Snædís og Þorvaldur, eru ekki aðilar að málinu vegna anna og fjarlægðar. Hann stendur því einn gegn Orkuveitunni. „Það er erfitt fyrir einstakling að fara upp á móti risabákni eins og Orkuveitunni sem er með fjölda lögfræðinga á sínum snærum. Manni finnst þetta mikið offors og einstaklingar eru varnarlausir þegar stofnanir sem þessar fara gegn þeim. Þetta er mikil og dýr eignaupptaka.“

Hrafn: „Ég gaf föður mínum loforð áður en hann dó að móðir mín fengi að hafa þarna griðastað áfram“

Hrafn segir húsið ekki ógna vatnsöryggi borgarinnar á nokkurn hátt. Það standi langt fyrir neðan Gvendarbrunna og vatn renni ekki upp í móti. Þar að auki sé ekki hægt að flytja það á annan stað. „Þú flytur ekki steinhús. Það þyrfti að rífa það með tilheyrandi umhverfisspjöllum.“ Fjölskyldan hefur haft bústaðinn leigulausan en Hrafn telur að staðurinn sé í raun almenningur. „Það er ekkert hlið og allir mega vera á þessum fallega stað.“

Niðurstaða hæstaréttar

Orkuveitan sýkn af öllum kröfum.Hrafn greiði málskostnað kr. 1.000.000.

Húsið fer

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á varakröfu Orkuveitunnar í dómi sínum sem féll 14. júní árið 2016. Hrafn fær afnotarétt af lóðinni til 15 ára og er sá réttur bundinn við hann sjálfan og fellur niður að honum látnum. Hrafn áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar 2. ágúst það sama ár. Þann 12. október síðastliðinn úrskurðaði Hæstiréttur Orkuveitunni að fullu í vil. Eiríkur Hjálmarsson segir að nú verði öllum bústaðaeigendum svæðisins, þar á meðal Hrafni, boðinn 15 ára samningur á grundvelli dómsins. Aðspurður hvort húsið verði rifið ef Hrafn fellst ekki á samninginn segir Eiríkur: „Við skulum bara sjá hvað setur.“ Um hvort Orkuveitan muni bjóðast til að kaupa bústaðina segir hann: „Það er ekkert sem knýr okkur til að kaupa neinar eignir þarna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu