fbpx
Miðvikudagur 08.maí 2024
Fréttir

Hættir sem bæjarstjóri eftir að hafa samþykkt starfslokasamning

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 9. nóvember 2016 09:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri Grindavíkur, hefur samþykkt starfslokasamning við bæinn. Samningurinn var samþykktur á aukafundi bæjarstjórnar í gærkvöldi, með fjórum atkvæði. Minnihlutinn sat hjá við atkvæðagreiðsluna.

Ástæða þess að starfslokasamningurinn var lagður fram, má að sögn að hluta rekja til brottflutnings Róberts frá Grindavík. Þá má líka nefna að hann rataði í fréttir fyrir að hafa leigt út húsnæði bæjarins, sem hann hafði sjálfur afnot af vegna starfs síns, til ferðamanna, í gegn um Airbnb.

Róbert verður bæjarstjóri til 31. janúar 2017.


Yfirlýsing meirihluta D- og G-lista

Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur og Róbert Ragnarssonar hafa komist að samkomulagi um starfslok Róberts hjá sveitarfélaginu. Róbert mun sinna störfum sem bæjarstjóri til 31. janúar 2017.

Starf bæjarstjóra verður auglýst innan skamms en samkvæmt samkomulagi um starfslok Róberts sem bæjarstjóra mun hann verða nýjum bæjarstjóra innan handar fyrst um sinn og tryggja þannig að starfslok hans valdi sem minnstri truflun á rekstri bæjarfélagsins.

Róbert hefur gengt starfi bæjarstjóra frá ágúst 2010 og vill meirihluta bæjarstjórnar Grindavíkur þakka Róberti af heilum hug fyrir afar vel unnin störf og gott samstarf.

Áætlaður kostnaður við starfslok Róberts eru 6.000.000 kr sem reiknast á þrjá mánuði með launum og launatengdum gjöldum. Í núverandi ráðningarsamningi er kveðið á um þriggja mánaða biðlaunarétt við lok kjörtímabilsins. Sá kostnaður hefði alltaf komið til við lok ráðningarsamnings Róberts og er hann því ekki reiknaður með við þessi starfslok. Lögmannskostnaður í málinu er tæpar 830.000 kr.


Yfirlýsing minnihluta B- og S lista

Bæjarfulltrúar B- og S- lista harma mjög þau vinnubrögð meirihluta D – og G – lista sem átt hafa sér stað við vinnslu starfslokasamnings Róberts Ragnarssonar bæjarstjóra. Málið var unnið og samningar undirritaðir, bæði við lögfræðing og bæjarstjóra, án þess að nokkur umræða hafi átt sér stað í bæjarstjórn eða bæjarráði.

Róbert var ráðinn við upphaf síðasta kjörtímabils. Þá strax lagðist þáverandi bæjarstjórn í mikla vinnu við endurskipulagningu á stjórnskipulagi og rekstri bæjarins. Gríðarlegur árangur hefur náðst á grunni þeirrar vinnu. Í dag er Grindavíkurbær eitt best rekna sveitarfélag landsins og í öðru sæti á lista Vísbendingar um fyrirmyndar sveitarfélagið. Þessi árangur hefði ekki náðst nema með góðri samvinnu bæjarfulltrúa og starfsfólks Grindavíkur. Róbert gegndi mikilvægu hlutverki í þeirri vinnu og er því leitt að sjá hann hverfa frá störfum á þessum tímapunkti. Fulltrúar B- og S- lista þakka Róberti innilega fyrir samstarf síðustu ára og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Fundinn sátu eftirfarandi bæjarfulltrúar::

Kristín María Birgisdóttir, forseti bæjarstjórnar (G)
Hjálmar Hallgrímsson, varaforseti (D)
Guðmundur Pálsson (D)
Jóna Rut Jónsdóttir (D)
Ásrún Kristinsdóttir (B)
Guðmundur Grétar Karlsson (B)
Marta Sigurðardóttir (S)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Silva aftur heim
Fréttir
Í gær

Segja að Rússar hyggist neyða íbúa á herteknu svæðunum til herþjónustu

Segja að Rússar hyggist neyða íbúa á herteknu svæðunum til herþjónustu
Fréttir
Í gær

Klæddist eins og ruslapoki til að stela tveimur hleðslutækjum – „Ég hélt að einhver væri að grínast í mér“

Klæddist eins og ruslapoki til að stela tveimur hleðslutækjum – „Ég hélt að einhver væri að grínast í mér“
Fréttir
Í gær

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina

Fríkirkjan Kefas fær að standa – Lýður taldi sig eiga lóðina
Fréttir
Í gær

Tíðindi hjá Sverri Einari: B5 hættir starfsemi en Exit heldur áfram

Tíðindi hjá Sverri Einari: B5 hættir starfsemi en Exit heldur áfram
Fréttir
Í gær

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“

Stefán Einar svarar fyrir sig – Segir ómerkilega menn hafa ráðist á eiginkonu hans – „Þá skortir sómakennd til að sjá að sér“
Fréttir
Í gær

Elín Hirst óttast um velferð föður síns

Elín Hirst óttast um velferð föður síns