fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fréttir

Dúntökudeilan fer fyrir Hæstarétt

Kirkjuráð samþykkti að áfrýja dúntökumálinu – Neitar að sleppa hlunnindum af æðarvarpi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. janúar 2016 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er ákaflega sár yfir þessu og það er sorglegt ef það eina sem fjölskylda mín, sem er erlend, muni vita um íslenska kirkju, er að hún lögsækir sóknarbörn sín til að reyna að hafa af þeim eignir þeirra,“ segir landeigandinn Kári H. Jónsson en Kirkjuráð hefur samþykkt að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands í dúntökumálinu svokallaða til Hæstaréttar eftir að hafa tapað því í lok október.

DV greindi frá niðurstöðunni í byrjun nóvember þegar ljóst var Kári hefði unnið fullnaðarsigur í deilu sinni við Kirkjumálasjóð Þjóðkirkjunnar sem stefndi Kára vegna áralangra deilna um dúntökuhlunnindi af æðarvarpi á jörð Kára á Snæfellsnesi. Kári var sýknaður af kröfum Þjóðkirkjunnar sem var gert að greiða honum 1,2 milljónir í málskostnað. Kári sagði í samtali við DV þá að hann vonaðist til að Biskupsstofa sætti sig við þessi málalok. Nú er ljóst að svo verður ekki og kirkjan ætlar með dúntökudeiluna alla leið í Hæstarétt.

Fyrirspurn DV til Biskupsstofu, um hvort kirkjan ætlaði að áfrýja dómnum, sem send var við vinnslu fréttarinnar af niðurstöðu dómsins í byrjun nóvember var aldrei svarað en samkvæmt fundargerð kirkjuráðsfundar frá 14. desember síðastliðnum, liggur ákvörðun nú fyrir.

Þar kemur fram að Kirkjuráð samþykki að áfrýja umræddu máli gegn Kára, máli númer E-69/2014 í Héraðsdómi Vesturlands, til Hæstaréttar. Kári kveðst hafa fengið að vita af ákvörðuninni í ársbyrjun.

„Mér finnst þetta bara alveg ótrúlegt því ég hef verið í sambandi við hæstaréttarlögmenn, sem fannst þetta algjörlega tapað mál af þeirra hálfu eins og það var í héraði.“

Kirkjumálasjóður stefndi Kára þar sem Þjóðkirkjan taldi sig eiga heimtingu á dúntökuhlunnindum af æðarvarpi á grundvelli ítaks í hólma á jörð Kára á Snæfellsnesi
Kirkjan í mál Kirkjumálasjóður stefndi Kára þar sem Þjóðkirkjan taldi sig eiga heimtingu á dúntökuhlunnindum af æðarvarpi á grundvelli ítaks í hólma á jörð Kára á Snæfellsnesi

Mynd: Mynd DV

Kirkjumálasjóður stefndi Kára þar sem Þjóðkirkjan taldi sig eiga heimtingu á dúntökuhlunnindum af æðarvarpi á grundvelli ítaks í hólma á jörð Kára á Snæfellsnesi. Kirkjan vildi fá viðurkennt að hún ætti rétt á tekjum af um fjórum kílóum af dúni þar á ári. Kári hefur lýst því í viðtölum við DV að málið hafi valdið honum óþægindum, þar sem hann hefur meðal annars verið þjófkenndur.

Áralöng deila

Forsaga málsins er að Kári, sem eignaðist jörðina Haga árið 2007, kærði sóknarprestinn á Staðastað árið 2010 fyrir dúntöku í leyfisleysi í Gamlahólma í Hagavatni sem tilheyrir jörð Kára. Í gegnum aldirnar hefur Þjóðkirkjan eignast ítök í jörðum um allt land, en ítök ganga út á að kirkjan hafi nýtingarrétt af tilteknum auðlindum eða hlunnindum í landi annarra.

Árið 1952 setti Alþingi hins vegar lög um að kirkjan og aðrir þeir sem teldu sig eiga ítök í jörðum sem eru í eigu annarra yrðu að lýsa þeim ítökum formlega. Þau áttu þó ekki að taka gildi fyrr en sýslumaður væri búinn að þinglýsa þeim. Á þeim tíma lýsti biskup Íslands ítaki í Gamlahólma í Hagavatni þó að ekki hafi verið kveðið sérstaklega á um dúntöku í hólmanum. Hins vegar kom fram í svari sýslumanns í Snæfells- og Hnappadalssýslu til biskups að frekari gögn um ítakið vantaði og því var ekki hægt að þinglýsa ítakinu á þeim tíma. Kári fékk síðar staðfest hjá sýslumanni að kröfum kirkjunnar um nýtingarrétt í hólmanum hafi aldrei verið þinglýst á sínum tíma. Réttur kirkjunnar til að tína dún þar hafi því fallið niður árið 1953.

Vildu ekki sleppa aukatekjum

Kirkjan vildi því láta reyna á þetta fyrir dómi þó að viðurkennt hafi verið í stefnunni að ekki lægi ljóst fyrir „hvernig fór með skráningu þeirra ítaka sem lýst var og hugsanlega hefur sú skráning ekki verið framkvæmd með þeim hætti sem lög buðu.“ Fram kom í stefnunni á sínum tíma að Kirkjumálasjóður hafði þann vara á að ef ekki yrði fallist á að ítakið hafi verið skráð lögum samkvæmt þá yrði byggt á því að hefð hefði myndast fyrir ítakinu enda prestar haldið dúntöku áfram óslitið frá 1954. Með öðrum orðum þá hafi sóknarprestar á Staðastað getað tínt æðardún í hólmanum, selt hann sjálfir og stungið ágóðanum í eigin vasa.

Í DV í apríl 2014 kom fram að þannig hafi þetta gengið ágreiningslaust um áratugaskeið eða þar til Kári eignaðist jörðina Haga árið 2007. Þá fór hann að vinna í því að fá hlunnindi vegna æðarvarps skráð á jörð sína. Svo fór að Þjóðskrá Íslands féllst fyrir nokkrum árum á beiðni hans um að skrá fjögur kíló dúntökuhlunninda á ári á jörðina Haga. Þessum aukatekjum, sem Kári sagði þá að gætu numið í mesta lagi 400 þúsund krónum á ári, átti Þjóðkirkjan erfitt með að sleppa takinu á.

Kirkjuráð ákvað á fundi sínum í desember síðastliðnum að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands sem hafði dæmt Kára í vil í lok október.
Áfrýja til Hæstaréttar Kirkjuráð ákvað á fundi sínum í desember síðastliðnum að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu Héraðsdóms Vesturlands sem hafði dæmt Kára í vil í lok október.

Mynd: © Karl Petersson 2009 © Karl Petersson 2009

Gagnrýndi hörkuna

Kára, sem er 76 ára og búsettur í Lúxemborg, þótti með ólíkindum hversu hart kirkjan hefði gengið fram til að vinna aftur ítak sem fallið væri úr gildi og hefði verið fært yfir á jörð hans: „Og nota til þess öll tiltæk brögð eins og bregða fyrir sig hefðarlögum.“ Þrátt fyrir að Kári fullyrði að hann hafi rétt fram sáttarhönd í málinu, varð niðurstaðan sú að kirkjan ákvað að stefna honum og krefjast þess að viðurkennt yrði með dómi að öll hlunnindi af æðarvarpi í Gamlahólma í Hagavatni tilheyrðu kirkjujörðinni og prestsetrinu að Staðastað, Snæfellsbæ, og að öðrum en þeim sem eigandi Staðastaðar heimilar að nýta þessi hlunnindi sé óheimilt að nýta þau. Einnig var farið fram á að Kári greiddi allan málskostnað.

Ítakið fallið úr gildi fyrir 61 ári

Í niðurstöðu héraðsdóms, sem kvað upp dóm í málinu þann 28. október síðastliðinn, var staðfest að hið umdeilda ítak kirkjunnar til dúntöku hafi, líkt og Kári vildi meina, fallið úr gildi vegna áðurnefndrar vanlýsingar á sjötta áratug síðustu aldar – hafi það á annað borð þá verið til staðar, eins og segir í dómnum.

Dómurinn tók því næst afstöðu til varakröfu Kirkjumálasjóðs sem var að ef ítak kirkjunnar hefði fallið niður vegna handvammar biskups árið 1953, hefði engu að síður myndast fyrir því hefð.

„Enda hafi sitjandi prestar á Staðastað haldið áfram óslitið að nýta hlunnindi af æðarvarpi í Gamlahólma á sama hátt og fyrr.“
Í niðurstöðu dómsins sagði, þrátt fyrir að gögn sem Kirkjumálasjóður lagði fram fyrir dómi, að engin gögn liggi fyrir í málinu, eins og skattframtöl eða önnur rekstrargögn „sem renna styrkari stoðum undir eða sýna fram á að dúntekja í hólmanum hafi verið stunduð óslitið og samfleytt frá Staðastað eftir 8. júlí 1954, þannig að til hefðar gæti hafa stofnast.“

Því verði ekki séð að Kirkjumálasjóður hafi í nokkru sýnt fram á að hann hafi öðlast öll hlunnindi af æðarvarpi í umræddum hólma sem ítak á grundvelli hefðar „og skiptir þá ekki máli hvort um sé að ræða sýnilegt eða ósýnilegt ítak.“

Var Kári því sýknaður af dómkröfum Kirkjumálasjóðs og vann hann fullnaðarsigur í málinu og Kirkjumálasjóði Þjóðkirkjunnar gert að greiða honum 1,2 milljónir í málskostnað, sem fyrr segir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Skip Eimskips missti fimmtán gáma í sjóinn austan við Vestmannaeyjar og laskaðist – „Mannleg mistök“

Skip Eimskips missti fimmtán gáma í sjóinn austan við Vestmannaeyjar og laskaðist – „Mannleg mistök“
Fréttir
Í gær

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“

Þetta hafði þjóðin að segja um kappræðurnar í kvöld – „Hjálp. Hjálpið mér. Ég á svo erfitt með þetta. Ég get samt ekki slökkt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur

Varð fyrir barðinu á svikara og þarf að borga Landsbankanum 300 þúsund krónur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans

Eftir hörmulegt slys á Íslandi hefur hann þetta að segja um Landspítalann og starfsfólk hans
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli

Bönkuðu upp á hjá manninum sem braut gegn dóttur hans – Það endaði með dómsmáli
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum