„Það er örugglega kaka með morgunkaffinu hjá Útvarpi Sögu“
Það má segja að hálf heimsbyggðin standi á öndinni eftir að ljóst varð að Donald Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna, og í leiðinni einn valdamesti maður heims. Enn sem komið er er Trump með 276 kjörmenn á meðan Clinton er með 218. Enn ríkir óvissa með 44 kjörmenn. Til þess að landa embættinu þurfti Trump að fá 270 kjörmenn.
Þá sigraði Trump flest ríkin sem óvissa var um, svo sem Florida og Ohio. Íslendingar eru að sjálfsögðu skoðanaglaðir á Twitter líkt og fyrri daginn. Hér má sjá nokkur vel valin tíst.
Maður vissi að Bandaríkin væru full af fáfræði, fordómum, kvenfyrirlitningu og hatri… en vá! #uskos16
— Björn Bragi (@bjornbragi) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Þetta kennir okkur meðal annars að vanmeta ekki kvenfyrirlitningu heimsins. #uskos16
— KosningaHildur ♀ (@hillldur) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Sigmundur Davíð: „Ég hefði náð Flórída og Ohio.“ #uskos16 pic.twitter.com/CDoxPp5PhA
— Haukur Viðar (@hvalfredsson) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Jæja krakkar, á hvaða stig sorgar eruð þið komin? #uskos16
— Hildur Hjörvar (@hhjorvar) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Hvað er aftur númerið hjá Pollýönnu? #uskos16
— vikingurv (@vikingurv) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Venjulega eftir úrslit kosninga vonar maður að einhverjir hlutir breytist til hins betra,nú vona ég bara að hann breyti helst engu #uskos16
— Áslaug Arna (@aslaugarna) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Þegar þú áttar þig á að þú þarft að senda Donald Trump heillaóskir. #uskos16 pic.twitter.com/ZRQOpMpGNP
— Gunnar Dofri (@gunnardofri) November 9, 2016
//platform.twitter.com/widgets.js
Það er örugglega kaka með morgunkaffinu hjá útvarpi Sögu. #uskos16
— Reynir Jónsson (@ReynirJod) November 9, 2016