Vill að Reykjavíkurborg reki nytjamarkað – „Að það skuli finnast fátækt í svo gjöfulli borg er slakri stjórnun að kenna“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hyggst leggja til að Reykjavíkurborg komi upp vettvangi þar sem húsgögn og húsbúnaður fáist gefins þeim er minnst hafa milli handanna. Hún segir mikla fátækt þrífast í Reykjavík: „Ég hef í starfi mínu sem borgarfulltrúi Flokks fólksins orðið áþreifanlega vör við að í borginni býr hópur fólks við sára fátækt, Lesa meira
Sjáðu hvernig Miklabraut í stokk og Borgarlínan gæti litið út – Borgarstjóri deilir myndbandi
EyjanÍ nýrri samgönguáætlun ríkisins er nokkrum verkefnum flýtt frá fyrri áætlunum. Þeirra á meðal er stokklagning Miklubrautar, þar sem umferðinni verður beint í stokk/göng undir svæðið, sem um leið minnki mengun og gefur færi á frekari uppbyggingu íbúðahúsnæðis. Er umferðin um stokkinn sögð anna 42 þúsund bílum á sólarhring. Borgarstjóri deilir myndbandi af því hvernig Lesa meira
Sjálfstæðismaður segir veggjöldin koma verst niður á þessum hópi fólks – Tilheyrir þú honum ?
EyjanBjörn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ritar um samgöngusáttmálann í Morgunblaðið í dag. Þar segir hann að sjálfstæðismönnum þyki verst hversu lítið og illa útfærður sáttmálinn sé og undrast að ekkert arðsemismat hafi farið fram: „Það er ekki ábyrgt af stjórnmálamönnum að ana af stað í stórframkvæmdir án þess að hnýta alla lausa enda, hvað þá að Lesa meira
Ólöf spyr hvað hafi orðið um fjármunina – „Viðbrögð borgarstjórans bera vott um valdhroka – Hver er gráðugur?“
EyjanLíkt og greint hefur verið frá í fréttum hafa verktakar tekið sig til og stefnt Reykjavíkurborg vegna innviðagjalda sem borgin hefur innheimt vegna uppbyggingar á fasteignamarkaði. Ólöf Skaftadóttir, annar ritstjóra Fréttablaðsins, tekur upp hanskann fyrir verktakana í leiðara blaðsins í dag undir yfirskriftinni „Hver er gráðugur?“ er hún spyr hvert peningarnir fari: „Oft er óljóst Lesa meira
Sanna Madgalena: Húsnæði er mannréttindi en ekki markaðsvara
EyjanSanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er gagnrýnin á húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar í pistli á vef Sósíalistaflokks Íslands. Tilefnið er að stefna í málefnum heimilislausra var borin upp til samþykktar á borgarstjórnarfundi í gær. Hún segist fylgjandi leiðarljósinu í húsnæðisstefnunni, að sýna virðingu á öllum stigum þjónustunnar en mikilvægt sé að setja ekki skilyrði fyrir húsnæði og Lesa meira
Tillaga sjálfstæðismanna samþykkt í borgarstjórn
EyjanTillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að Reykjavík verði leiðandi í aðlögun umferðarmerkinga í samræmi við tækninýjungar í umferð var samþykkt að framlagðri breytingartillögu meirihlutans með 22 atkvæðum en einn borgarfulltrúi sat hjá, samkvæmt tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum. Breytingartillagan var tæknilegs eðlis og laut að því að heildarúttekt umferðarmerkinga færi fram samhliða endurskoðun á reglugerð um umferðarmerki á Lesa meira
Reykjavíkurborg fær kolefnisjöfnunarstyrk frá Evrópusambandinu
EyjanSamstæða Reykjavíkurborgar hlaut nýlega tæplega 160 milljóna króna styrk til fimm ára úr Horizon 2020 sem er rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Frá þessu er greint í tilkynningu. Horizon 2020 styrkurinn er veittur til kyndilborgarverkefnisins SPARCs og snýr að kolefnisjöfnun og orkuskiptum í borgum. Reykjavíkurborg mun vinna að verkefninu í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur sem einnig Lesa meira
Vigdís vægast sagt ósátt við fegrunaraðgerðir borgarstjóra – „???“ -Myndir
EyjanNú standa yfir miklar framkvæmdir vegna endurskipulagningar á þremur torgum í Reykjavík undir nafninu „Þingholt, torgin þrjú“, þar sem um 300 milljónum er varið til þess að gera upp Baldurstorg, Freyjutorg, og Óðinstorg, en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri býr við Óðinstorg. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ekki par sátt við útkomuna, ef marka má færslu Lesa meira
Segir Félagsbústaði vera rekna eins og banka: „Þessi breyting er með eindæmum ómanneskjuleg“
EyjanKolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram tillögu á fundi velferðarráðs um að Félagsbústaðir sæju sjálfir um að innheimta skuld á leigu og greiðsludreifingu skulda hjá leigjendum sínum, líkt og áður hafi verið gert. Nýlega varð breyting á hjá Félagsbústöðum á þessu, þar sem félagið fékk Mótus til að sjá um innheimtu skulda fyrir sig, Lesa meira
Segir viðbúið að verkefnið fari fram úr áætlun – „Ekki nema von að menn spyrji sig spurninga“
EyjanEyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, gagnrýnir óvissuna varðandi fjármögnun samgöngusáttmálans sem borgarstjóri ræddi í Kastljósinu í gær: „Dagur B Eggertsson staðfesti í Kastljósi kvöldsins að fjárhagsáætlanir „samgöngupakkans“ væru á frumstigi. Hann staðfesti ennfremur að ekki liggur fyrir hver eigi að borga þegar verkefnið fer fram úr áætlun.Sem er viðbúið. Stærsti hluti fjármögnunarinnar upp á Lesa meira