fbpx
Laugardagur 11.maí 2024

Morgunblaðið

Eyþór – „Það er enginn með mig í vasanum”

Eyþór – „Það er enginn með mig í vasanum”

Eyjan
22.11.2019

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, hefur verið gagnrýnin á Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, vegna tengsla hans við Samherja er varðar eignarhlut hans í Morgunblaðinu. Hefur hún áður sakað Eyþór um lygar vegna málsins og segir hann nú vera margsaga og hefur borgarstjóri tekið undir orð hennar. Þau ræddu málið í Bítinu á Bylgjunni Lesa meira

Morgunblaðið hæðist að borgarstjóra –„Þetta er alger draumatillaga“

Morgunblaðið hæðist að borgarstjóra –„Þetta er alger draumatillaga“

Eyjan
18.11.2019

Staksteinahöfundur Morgunblaðsins fjallar um stefnu borgaryfirvalda í húsnæðismálum og tillögu Dags B. Eggertssonar um að bankarnir endurmeti greiðslumat sitt vegna íbúðarlána, en borgaryfirvöld hafa tilkynnt um 2000 nýjar íbúðir á næsta ári og alls séu um 4200 íbúðir á framkvæmdastigi: „Stefna borgaryfirvalda í skipulags- og húsnæðismálum hefur í megindráttum verið sú að auka við byggingar Lesa meira

Davíð svarað: „Góð áminning um þau sérhagsmunaöfl sem standa að útgerð Morgunblaðsins“

Davíð svarað: „Góð áminning um þau sérhagsmunaöfl sem standa að útgerð Morgunblaðsins“

Eyjan
12.11.2019

Stjórnarskrárfélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings Morgunblaðsins og leiðaraskrifum Davíðs Oddsonar af rökræðukönnun sem haldin var í Laugardalshöll um helgina. Í frétt Morgunblaðsins sagði að meðlimir Stjórnarskrárfélagsins hefðu verið með áróður á fundinum og nærvera þeirra vakið furðu gesta. Fer Davíð Oddsson síðan hörðum orðum um málið í leiðara Morgunblaðsins í dag. Sjá Lesa meira

Davíð í stuði: „Risastórt andaglas“- „Vitleysingaspítali“ – „Rugl“ – „Stórskrípaleikur“

Davíð í stuði: „Risastórt andaglas“- „Vitleysingaspítali“ – „Rugl“ – „Stórskrípaleikur“

Eyjan
12.11.2019

Fullvíst má telja að leiðarahöfundur Morgunblaðsins í dag sé Davíð Oddsson. Fjallar hann um stjórnarskrármálið og sparar ekki stóru lýsingarorðin, en greint var frá því í gær að í rökræðukönnun um endurskoðun stjórnarskrárinnar sem haldin var í Laugardalshöll um helgina, hefðu meðlimir í Stjórnarskrárfélaginu verið viðstaddir. Var fréttin á forsíðu Morgunblaðsins og mikið gert úr Lesa meira

Var Davíð að segja brandara í Mogganum ?

Var Davíð að segja brandara í Mogganum ?

Eyjan
01.11.2019

Staksteinahöfundur Morgunblaðsins er gamansamur í dag og fer með prýðilega skrýtlu. Miðað við efni og stíl hennar er ástæða til að velta fyrir sér hvort þar haldi Davíð Oddsson ritstjóri um pennann, en gamansemi hans er margrómuð, þó svo sum Reykjavíkurbréf hans hafi mörgum þótt heldur súr. Staksteinhöfundur skrifar: „Á hverju hausti berast fréttir af Lesa meira

Samkeppniseftirlitið leiðréttir Morgunblaðið – „Farið rangt með í frásögn af rannsókn“

Samkeppniseftirlitið leiðréttir Morgunblaðið – „Farið rangt með í frásögn af rannsókn“

Eyjan
30.10.2019

Samkeppniseftirlitið hefur sent frá sér tilkynningu um leiðréttingu. Hún er eftirfarandi: Í pistli Innherja í Viðskiptablaði Morgunblaðsins er farið rangt með í frásögn af rannsókn Samkeppniseftirlitsins á undanþágubeiðni vegna samstarfs Eimskipafélagsins og Royal Arctic Line (RAL). Í blaðinu er sagt að tilkynnt hafi verið um samstarfið í byrjun árs 2016. Hið rétta er að Samkeppniseftirlitinu barst Lesa meira

Reykjavíkurborg hækkað fasteignaskatta um 61% frá 2015 –„ Ofnýtir þennan skattstofn eins og aðra“

Reykjavíkurborg hækkað fasteignaskatta um 61% frá 2015 –„ Ofnýtir þennan skattstofn eins og aðra“

Eyjan
28.10.2019

Í leiðara Morgunblaðsins er fjallað um fasteignagjöld og „hömlulausar hækkanir“ á fasteignaskatti hér á landi undanfarin ár, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu. „Skattheimta hefur aukist mikið hér á landi síðastliðinn áratug eða svo án þess að vart verði við mikinn vilja til að stíga skref til baka og létta þessum byrðum af skattgreiðendum. Almenningur situr uppi Lesa meira

Jóhann er bálreiður: Sakar Kópavogsbæ og einkafyrirtæki um einræðistilburði og dólgshátt – „Helvítis fantar“

Jóhann er bálreiður: Sakar Kópavogsbæ og einkafyrirtæki um einræðistilburði og dólgshátt – „Helvítis fantar“

Eyjan
23.10.2019

UPPFÆRT Í fyrstu útgáfu fréttinnar var vitnað í grein Jóhanns þar sem hann talaði um Íslensku gámaþjónustuna,(sem nú heitir Terra) en hið rétta er að Jóhann var að meina Íslenska gámafélagið. Eru hlutaðeigandi beðnir afsökunar á nafnaruglinu. Jóhann Páll Símonarson, fyrrverandi sjómaður, segir farir sínar og íbúa í Blásölum í Kópavogi ekki sléttar af samskiptum Lesa meira

Borgarstjóri krefst afsökunarbeiðni Morgunblaðsins vegna „vandræðalegasta“ leiðara sem hann hefur lesið – „Rugl“

Borgarstjóri krefst afsökunarbeiðni Morgunblaðsins vegna „vandræðalegasta“ leiðara sem hann hefur lesið – „Rugl“

Eyjan
18.10.2019

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, krefst þess að Morgunblaðið leiðrétti leiðaraskrif sín í blaði dagsins og biðjist afsökunar á þeim. Þar sé farið með fleipur varðandi samþykkt borgarstjórnar á samgöngusáttmálanum á þriðjudag, en vísað er í að fyrirvaratillaga Sósíalistaflokksins hafi verið samþykkt, þegar hún var í raun felld, meðan tillaga Pírata, sem einnig var háð fyrirvörum, Lesa meira

Segir Viðreisn taka sér stöðu vinstramegin við „alræmdu“ vinstristjórnina

Segir Viðreisn taka sér stöðu vinstramegin við „alræmdu“ vinstristjórnina

Eyjan
09.10.2019

Leiðarahöfundur Morgunblaðsins skýtur föstum skotum á Viðreisn vegna hugmynda þeirra um þriggja þrepa erfðafjárskatt í dag og miðað við hvaða skoðunum Davíð Oddsson, annar ritstjóra Morgunblaðsins hefur lýst á þeim flokki, má ætla að hann haldi um penna: „Athygli vekur að á sama tíma og fjármálaráðherra setur fram hugmyndir um að bæta við einu lægra Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af