Jóhann Páll Jóhannsson: Það kostar mikla fjármuni að standa utan ESB og stunda hagsmunagæslu
Ríkisstjórnin hefur samið um framlengingu á undanþágu Íslands frá ETS gjöldum þannig að næstu þrjú ár er heimilt að afhenda losunarheimildir endurgjaldslaust til íslenskra flugfélaga. Á sama tíma vinnur ESB að endurskoðun þessara gjalda m.a. með tilliti til stöðu eyja á borð við Kanaríeyja og Íslands.