Eyjan

Orðið á götunni: Nú er mál að linni!

Mynd
Mynd úr safni.

Orðið á götunni er að sjókvíaeldi hér við land sé komið langt út yfir öll eðlileg mörk. Mótmæli á Seyðisfirði og í Reykjavík gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í firðinum og undirskriftir meira en 13 þúsund einstaklinga sem mótmæla eldinu sýna að mælirinn er fullur og fólk er búið að fá nóg.

Við þetta bætist að arðurinn af sjókvíaeldi við Ísland rennur að stærstum hluta til útlanda, fyrst og fremst til norskra fyrirtækja sem hafa nýtt sér það að til skamms tíma sýndu íslensk stjórnvöld ótrúlega lausung í veitingu leyfa og gjaldtaka af greininni hér á landi er langt undir því sem þekkist t.d. í Noregi.

Umhverfisverndarsamtök hafa lengi mótmælt sjókvíaeldi vegna skaðlegra umhverfisáhrifa sem starfsemin veldur. Þá hafa laxveiðimenn og veiðifélög mótmælt þessari starfsemi harðlega en einhvern veginn virðist sjókvíafyrirtækjunum ómögulegt að hafa kvíarnar það þéttar og traustar að þær haldi öllum eldisfiskinum inni. Hvað eftir annað hefur mikið magn sloppið og nú er svo komið að eldislax hefur blandast villtum laxi í flestum helstu veiðiám landsins. Villti atlantshafslaxastofninn hér við land á því verulega undir högg að sækja.

Norsk fyrirtæki eiga meirihluta og ráðandi hlut í þremur stærstu sjókvíafyrirtækjum á Íslandi. Á Vestfjörðum eru tvö fyrirtæki ráðandi, Arnarlax sem er með sjókvíaeldi í Arnarfirði, Patreksfirði og Tálknafirði. Arctic Fish er með eldi í Ísafjarðardjúpi, Dýrafirði, Arnarfirði, Patreksfirði og Tálknafirði. Norsk laxeldisfyrirtæki eiga meirihluta í báðum þessum félögum.

Á Austfjörðum er það Kaldvík, sem rekur fiskeldi í Berufirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Reyðarfirði. Mótmælin og undirskriftirnar nú eru til komnar til vegna leyfi til Kaldvík fyrir sjóeldi í Seyðisfirði. Austur Holding á 60% í Kaldvík en eigendur Austur Holding eru norskt félag sem á 70,7% og Ísfélagið í Vestmannaeyjum á 29,3%. Óhætt er því að segja að Norðmenn séu ráðandi í félaginu. Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, var aðstoðarforstjóri Kaldvíkur þar til hann tók við þingmennsku í árslok 2024.

Öll eiga þessi stóru sjókvíaeldisfyrirtæki síðan sláturhús fyrir eldislax. Arnarlax rekur sláturhús á Bíldudal, Arctic Fish rekur sláturhús á Bolungarvík, sem er afar athyglisvert vegna þess að síðan þarf að flytja fiskinn í flestu tilfellum suður á Keflavíkurflugvöll til útflutnings og á Vestfjörðum er ekki hægt að finna kaupstað sem er lengri vegalengd frá flugvellinum en einmitt Bolungarvík. Þannig spæna þungaflutningabílar upp íslensku vegakerfi við að koma fiski á markað. Kaldvík á svo sláturhús á Djúpavogi.

Mikill munur er á fiskeldi í sjókvíum og fiskeldi á landi, hvernig sem á málið er litið. Þannig er eignarhald landeldisfyrirtækja hér á landi að yfirgnæfandi hluta innlent. Þá hafa á undanförnum árum risið upp fyrirtæki m.a. við Þorlákshöfn og á Reykjanesi sem eru í góðri nálægð við Keflavíkurflugvöll. Engin hætta er á að eldislax sleppi úr landkvíum og blandist villtum laxi.

Orðið á götunni er að þó að best væri að banna með öllu sjókvíaeldi sé slíkt óraunhæft í ljósi þess að stöðvun á rekstri sem þegar er hafinn myndi baka íslenska ríkinu skaðabótaskyldu og það risastóra. Hins vegar hljóta íslensk stjórnvöld að skoða núna hvort ekki er hægt að stöðva frekara sjókvíaeldi og byrja þá á því að athuga hvort ekki er hægt að afstýra slysinu sem er í bígerð á Seyðisfirði. Viðbrögð Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfisráðherra, er hann tók við undirskriftunum, lofa góðu

Orðið á götunni er að bersýnilega hafi fyrri ríkisstjórnir verið allt of örlátar og greiðviknar við þá aðila sem staðið hafa fyrir gríðarlegri uppbyggingu á sjókvíaeldi í fjörðum landsins, aðallega á Vestfjörðum og Austfjörðum. Margt bendir til þess að náin tengsl áhrifamanna t.d. í Sjálfstæðisflokknum hafi þarna haft áhrif í þá veru að of mörg leyfi voru veitt og eftirlit í skötulíki. Þá fer því fjarri að gjaldtaka af þessum fyrirtækjum sé eðlileg. Þau fá að ógna og jafnvel fórna íslenskri náttúru og lífríki nær ókeypis. Þá er óhætt að fullyrða að stór hluti innviðaskuldarinnar sem safnast hefur upp í vegakerfinu stafi af þungaflutningum á vegum sjóeldisfyrirtækja.

Orðið á götunni er að nú sé mál að linni!