fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024

Donald Trump

Trump biður úthverfakonur að styðja sig

Trump biður úthverfakonur að styðja sig

Eyjan
15.10.2020

Í forsetakosningunum 2016 sigraði Donald Trump í Pennsylvania en mjótt var á munum milli hans og Hillary Clinton eða 0,7 prósentustig. Nú reynir Trump að fá „úthverfakonur“ í ríkinu til að styðja sig í kosningunum að þessu sinni. Trump á á brattann að sækja í ríkinu og „úthverfakonurnar“ eru mikilvægur kjósendahópur sem gæti ráðið úrslitum. Lesa meira

Trump segir að COVID-19 smitið hafi verið „blessun frá guði“

Trump segir að COVID-19 smitið hafi verið „blessun frá guði“

Pressan
08.10.2020

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er snúinn aftur til starfa í Hvíta húsinu eftir innlögn á Walter Reed hersjúkrahúsið fyrir helgi eftir að hann greindist með COVID-19. Trump birti myndband í gær af sér sem á að sýna að hann sé mættur aftur til starfa á nýjan leik. Í myndbandinu segir hann að smitið hafi verið „blessun frá guði“ því hann hafi lært Lesa meira

Enn fjölgar COVID-19 smitum í Hvíta húsinu

Enn fjölgar COVID-19 smitum í Hvíta húsinu

Pressan
07.10.2020

Í gær var staðfest að Stephen Miller, einn nánasti ráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, er smitaður af kórónuveirunni sem veldur COVID-19. Miller skýrði sjálfur frá þessu. Hann bætist þar með í hóp fjölmargra starfsmanna Hvíta hússins sem hafa greinst með veiruna. Margir af nánustu samstarfsmönnum forsetans hafa greinst með veiruna en Trump greindist sjálfur með hana í síðustu viku. „Síðustu fimm daga var ég í Lesa meira

Fjórar vikur í kosningar og allt bendir til að Trump og Repúblikanar tapi

Fjórar vikur í kosningar og allt bendir til að Trump og Repúblikanar tapi

Pressan
07.10.2020

Nú eru tæpar fjórar vikur í að Bandaríkjamenn gangi að kjörborðinu og kjósi forseta til næstu fjögurra ára. Þeir kjósa einnig um þriðjung sæta í öldungadeildinni og öll þingsætin í fulltrúadeildinni. Miðað við skoðanakannanir þá hafa Repúblikanar fulla ástæðu til að hafa áhyggjur því allt stefnir í að þeir tapi forsetaembættinu og meirihlutanum í öldungadeildinni Lesa meira

Nýjar og ótrúlegar samsæriskenningar um COVID-19 veikindi Trump

Nýjar og ótrúlegar samsæriskenningar um COVID-19 veikindi Trump

Pressan
07.10.2020

Það hefur varla farið fram hjá neinum að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, greindist með COVID-19 í síðustu viku. Veikindi hans og viðbrögð hans við þeim hafa nú orðið uppspretta ótal samsæriskenninga meðal stuðningsmanna hans. Þeir telja að veikindin hafi verið upphafið að fjöldahandtökum og lokauppgjöri Trump við leynilega valdaklíku sem stjórnar heiminum. Segja þeir að Rauður október sé í uppsiglingu Lesa meira

Fauci segir að enn geti farið illa fyrir Trump

Fauci segir að enn geti farið illa fyrir Trump

Pressan
06.10.2020

Donald Trump var útskrifaður af sjúkrahúsi í gær eftir þriggja daga dvöl vegna COVID-19 smits. Hann mun áfram fá aðhlynningu í Hvíta húsinu og vera undir eftirliti lækna allan sólarhringinn. Anthony Fauci, einn helsti ráðgjafi forsetans um smitsjúkdóma, segir að enn geti farið illa og ástand Trump geti versnað. Trump var fljótur að taka andlitsgrímuna af Lesa meira

Margir Repúblikanar telja að flokkurinn muni gjalda fyrir „heimskulega“ nálgun á COVID-19

Margir Repúblikanar telja að flokkurinn muni gjalda fyrir „heimskulega“ nálgun á COVID-19

Pressan
05.10.2020

Það var mörgum Repúblikönum mikið áfall að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, skyldi greinast með COVID-19 fyrir helgi. Óhætt er að segja að þetta hafi verið eins og jarðskjálfti fyrir flokkinn. Síðan fylgdu eftirskjálftarnir þegar fleiri Repúblikanar, úr fremstu röð flokksins, fóru að greinast með veiruna, þar á meðal þingmenn, kosningastjóri Trump og annað áhrifafólk innan flokksins. Í umfjöllun Washington Post er bent á að Lesa meira

Afgerandi forskot Biden í nýrri skoðanakönnun

Afgerandi forskot Biden í nýrri skoðanakönnun

Eyjan
05.10.2020

Joe Biden hefur vind í seglin þessa dagana miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar um fylgi forsetaframbjóðendanna. Samkvæmt könnuninni hyggjast 51% kjósenda kjósa Biden en 41% Donald Trump, sitjandi forseta. Könnunin var gerð af Ipsos fyrir Reuters og sýna niðurstöðurnar mesta forskot Biden á Trump í heilan mánuð. Könnunin var gerð 2. og 3. október, það er að segja eftir að kjósendur fengu vitneskju Lesa meira

Segja að Baba Vanga hafi spáð fyrir um veikindi Trump – Missir heyrn og fær heilaæxli að hennar sögn

Segja að Baba Vanga hafi spáð fyrir um veikindi Trump – Missir heyrn og fær heilaæxli að hennar sögn

Pressan
05.10.2020

Aðdáendur búlgörsku spákonunnar Baba Vanga, sem er einnig þekkt sem Nostradamus Balkanskagans“ segja að hún hafi spáð fyrir um „dularfull veikindi“ Bandaríkjaforseta árið 2020. Segja þeir að samkvæmt spádómi hennar þá muni Trump missa heyrnina og fá heilaæxli af völdum COVID-19. Meðal fyrri spádóma hennar, sem aðdáendur hennar telja að hafi ræst, eru flóðbylgjan mikla í Indlandshafi á annan dag jóla 2004 Lesa meira

Hörð gagnrýni á bíltúr Donald Trump í gær – „Ábyrgðarleysið er ótrúlegt“

Hörð gagnrýni á bíltúr Donald Trump í gær – „Ábyrgðarleysið er ótrúlegt“

Pressan
05.10.2020

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, dvelur nú á Walter Reed sjúkrahúsinu í Maryland eftir að hann var fluttur þangað á föstudaginn en vegna COVID-19 smits. Forsetinn ákvað að koma stuðningsmönnum sínum, sem hafa margir safnast saman við sjúkrahúsið, á óvart í gær og fara í bíltúr út fyrir sjúkrahúslóðina til að veifa stuðningsmönnunum og sýna sig. En mörgum þykir þetta hafa verið mjög Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af