Rúmlega 20 milljónir Breta hafa lokið bólusetningu við COVID-19
PressanNú hafa rúmlega 20 milljónir Breta lokið bólusetningu við COVID-19 en þetta eru um 40% fullorðinna. Um 37 milljónir hafa fengið einn skammt af bóluefni hið minnsta en það svarar til um 70% fullorðinna. Sky News segir að ríkisstjórnin telji að markmið hennar um að bjóða öllum fullorðnum að minnsta kosti einn skammt af bóluefni fyrir júlílok muni Lesa meira
Megnið af samsæriskenningum bóluefnaandstæðinga kemur frá 12 aðilum
PressanBólusetningar gegn kórónuveirunni eru áhrifamesta leiðin til að bjarga mannslífum í yfirstandandi heimsfaraldri. Samt sem áður hika margir við að láta bólusetja sig og það veldur ákveðnum vandræðum við að ná hjarðónæmi. Það er því mjög mikilvægt að átta sig á hvaðan sá áróður, sem er beint gegn bóluefnum og bólusetningum, berst. Þetta kemur fram Lesa meira
Svarti sauður Kennedyfjölskyldunnar – Við elskum Robert en hann tekur þátt í banvænni herferð
Pressan„Við elskum Robert F. Kennedy Jr. en hann tekur þátt í herferð, þar sem röngum upplýsingum er dreift, sem getur haft hræðilegar og banvænar afleiðingar,“ svona hófst bréf sem þrír úr hinni heimsþekktu bandarísku Kennedyfjölskyldu skrifuðu í Politico Magazine 2019. Robert F. Kennedy Jr. er sonur Robert F. Kennedy, dómsmálaráðherra, sem var myrtur 1968. Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur verið sem vatn á myllu Kennedy Jr. því hann er einarður andstæðingur bólusetninga og lætur mikið að Lesa meira
Stefnt á að bólusetja 24.000 manns í vikunni
FréttirÍ vikunni er stefnt að því að bólusetja 24.000 manns með bóluefnum frá Moderna, Pfizer, Jansen og AstraZeneca. Hraðar hefur gengið að bólusetja karla en konur. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er bjartsýn á að áætlanir gangi eftir. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að í vikunni fái um 12.000 manns bóluefni frá Pfizer og skiptast skammtarnir jafnt á fyrri og seinni Lesa meira
Varar við nýjum ofurafbrigðum kórónuveirunnar
PressanÁ meðan ríku löndin eru að bólusetja börn og unglinga er eldra fólk í Afríku og fólk í viðkvæmum hópum látið afskipt. Þetta getur valdið mikilli hættu fyrir alla heimsbyggðina þegar fram í sækir. Ástandið á Indlandi getur haft mikil áhrif í Afríku en nú er staðan svo slæm á Indlandi að landið getur ekki Lesa meira
Spáir því að Bretland verði laust við kórónuveiruna í ágúst
PressanClive Dix, sem er að láta af störfum sem yfirmaður bólusetningaáætlunar bresku ríkisstjórnarinnar, er bjartsýnn á að það takist að kveða faraldurinn niður á Bretlandi. Hann segist telja að í ágúst verði kórónuveiran ekki lengur á sveimi í landinu. „Einhvern tímann í ágúst verður kórónuveiran ekki í umferð í Bretlandi,“ sagði hann í samtali við The Daily Telegraph. Hann Lesa meira
Bólusetningum í Bandaríkjunum fer fækkandi – Stór hópur er hikandi
PressanNú hafa 56% fullorðinna Bandaríkjamanna fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni. En það er erfitt að fá þá sem eftir eru til að mæta í bólusetningu og meðal svartra íbúa í borgum landsins eru miklar efasemdir um bólusetningarnar og það sama á við um hvíta íhaldsmenn á landsbyggðinni. Í Washington D.C. hafa 37% Lesa meira
Biden vill fullbólusetja 160 milljónir Bandaríkjamanna fyrir 4. júlí
PressanÞað gengur vel að bólusetja Bandaríkjamenn gegn kórónuveirunni en Joe Biden, forseti, vill gera enn betur og á þriðjudaginn kynnti hann nýtt bólusetningamarkmið stjórnvalda. Nú er stefnt að því að 160 milljónir, hið minnsta, hafi lokið bólusetningu fyrir 4. júlí sem er þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna. Um 331 milljón býr í Bandaríkjunum. Nú hafa um 105 milljónir lokið bólusetningu og um Lesa meira
Bjóða ungu fólki greiðslu fyrir að láta bólusetja sig
PressanÍ Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum hefur gengið treglega að fá ungt fólk til að láta bólusetja sig gegn kórónuveirunni. Nú hafa yfirvöld gripið til þess ráðs að lofa fólki á aldrinum 16 til 35 ára skuldabréfi, útgefnu af ríkinu, að andvirði 100 dollara ef það lætur bólusetja sig. Jim Justice, ríkisstjóri og Repúblikani, segir að mikilvægt sé Lesa meira
Bólusetningu gegn kórónuveirunni er lokið á Gíbraltar – Hvernig er staðan þar núna?
PressanÞað er oft rætt um góðan árangur Breta og Ísraelsmanna við bólusetningu gegn kórónuveirunni en það gleymist oft að á Gíbraltar hafa bólusetningar einnig gengið vel og er þeim lokið. Gíbraltar er lítið breskt yfirráðasvæði við Miðjarðarhafið, umlukið Spáni og Miðjarðarhafinu. Þar búa um 34.000 manns. Búið er að bólusetja næstum alla fullorðna íbúa Gíbraltar Lesa meira