Vestri 2 – 0 Þór:
1-0 Gustav Kjeldsen
2-0 Vladimir Tufegdzic
Frábær gengi Vestra heldur áfram en liðið er komið í undanúrslit bikarsins eftir sigur á Þór á heimavelli í kvöld.
Vestramenn gengu frá leiknum í fyrri hálfleik með tveimur mörkum þar sem Gustav Kjeldsen og Vladimir Tufegdzic skoruðu.
Gestirnir áttu nokkrar álitlegar sóknir í leiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið.
Það kemur svo í ljós í kvöld og á morgun hvaða lið verða með Vestra í pottinum.
Aðrir leikir í átta liða úrslitum:
Stjarnan – Keflavík
ÍBV – Valur
Afturelding – Fram