fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025

Algjör óvissa með erlenda veiðimenn í sumar

Gunnar Bender
Miðvikudaginn 22. apríl 2020 09:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Núna eru rétt fimm vikur þangað til laxveiðin byrjar fyrir alvöru. Veiðin hefst í Þjórsá, síðan í Norðurá í Borgarfirði og í Blöndu. Algjör óvissa  ríkir með erlenda veiðimenn sem hafa komið hingað árum saman.  Ef því verður haldið til streitu að erlendir veiðimenn verði að fara í sóttkví, eins og með aðra ferðmenn, verður lítið um þá hérlendis í sumar í veiðiánum.

Erlendir veiðimenn veiða á dýrasta tímanum í laxveiðiánum á hverju sumri og staðan er því grafalvarleg þessa dagana. Menn eru að bíða og vona með einhverjar breytingar.  Faraldurinn úti í hinum stóra heimi þarf að lagast en hingað koma veiðimenn til að renna fyrir fisk víða úr heiminum.

,,Þetta eru allt stór spurningamerki eins og er en allt getur gerrst ennþá,“ sagði veiðileyfasali um stöðuna og bætti við. Það verður að koma í ljós hvað gerist á næstu vikum. Það eru sjö vikur þangað til þeir fyrstu erlendu veiðimennirnir eiga að koma hingað,“ sagði hann ennfremur.

Veiðileyfamarkaðurinn veltir um 12 til 15 milljörum á hverju ári, svo það er mikið undir þessa dagana. En það má ekki mikið gerast til að þetta klikki verulega.

Íslenskir veiðimenn hafa verið iðnir við kolann  síðustu vikurnar og veitt mikið fyrstu dagana á tímabilinu. Þeir eru í startholunum með sumarið og ætla að veiða mikið.  Nokkuð hefur verið um að bjóða leyfi á ódýra veðri og það gæti orðið meira á næstu viku.

Veiðisumarið 2020 er eitt stór spurningamerki, veiðileyfin, erlendir veiðimenn og svo laxveiðin, en allt skýrist þetta á allra næstu vikum. Fyrstu laxarnir eru á leið upp Hvítá í Borgarfirði. Áður fyrr gengu stóru laxarnir upp í ána uppúr miðjum apríl. Tími laxana nálgast óðfluga

 

Mynd. Allir eru að bíða þessa dagana, sumarið er stórt spuningamerki. Mynd María Gunnarsdóttir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda

Microsoft segir að gervigreind sé betri en læknar við að greina flókinn heilsufarsvanda
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir

Hringdi í Hazard eftir að hafa skrifað undir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo

Arsenal fær góð tíðindi ef félagið vill kaupa Rodrygo
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö

Glódís varð eftir uppi á hóteli – Bjartsýni fyrir leik tvö
Eyjan
Fyrir 13 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn