
Þetta kemur fram í umfjöllun tímaritsins Parede sem ræddi við sérfræðinga á heilbrigðissviði um þetta.
Það er vel þekkt að reykingar auka líkurnar á hjartasjúkdómum en sérfræðingarnir, sem tímaritið ræddi við, sögðu að ónógur og lélegur svefn geti einnig haft alvarlegar afleiðingar fyrir hjartað, jafnvel meiri en reykingar.
Hættan á að fá hjarta- og æðasjúkdóma eykst almennt með aldrinum en ákveðnir lífsstílsþættir geta hraðað öldrun hjartans. Hreyfingarskortur, óhollt mataræði og reykingar eru áhættuþættir og nú benda sérfræðingar á svefnskort sem enn einn áhættuþáttinn, áhættuþátt sem ekki hefur verið gefinn mikill gaumur fram að þessu.
Parede segir að samkvæmt niðurstöðum rannsókna tengist svefn, skemmri en fimm klukkustundir á nóttu, aukinni hættu á hjartasjúkdómum. Þetta á sérstaklega við um konur.
Beverly J. Fang, geðlæknir, sagði að líkurnar á að fá hjartasjúkdóma aukist mjög við svefn undir fimm klukkustundum á nóttu. Hún sagði að sumar rannsóknir bendi til að konur geti verið í meiri áhættu hvað þetta varðar en karlar. Hún benti einnig á að svefnskortur örvar taugakerfið sem valdi hærri púls og blóðþrýstingi.
Hún sagði að svefnskortur geti aukið magn stresshormónsins kortísól og valdið hærri viðvarandi blóðþrýstingi. Þetta auki álagið á hjartað og geti aukið hættuna á alvarlegum sjúkdómum.
Jack Wolfson, hjartalæknir, sagði að léleg svefngæði hafi þau áhrif að æðarnar hætti að geta framleitt köfnunarefnisoxíð sem veldur því að æðarnar geta síður slakað á.
Hann sagði að með tímanum geti lítill og lélegur svefn „aukið líkurnar á hjartaáfalli og hjartabilun mjög mikið“ og því sé mikilvægt að beina sjónunum að svefninum.