
Atvikið átti sér stað að morgni 20. janúar þegar drengurinn, Caleb Chabolla, var að gera sig klárann til að fara í skólann.
Caleb hafði eignast svokallað NeeDoh-leikfang skömmu áður, en um er að ræða tening úr þykku gúmmí- eða sílikonefni að utan með þéttu hlaupkenndu geli að innan.
Caleb brá á það ráð að setja leikfangið í örbylgjuofninn til að gera það mýkra, en ósköpin dundu yfir skömmu eftir að hann gerði það.
Móðir Calebs, Whitney Grubb, segir við tímaritið Peopole að sonur hennar hafi fengið hugmyndina eftir samtal við vin sem sagði honum frá trendinu á samfélagsmiðlum. Hún var úti í bílskúr að hita bílinn þegar hún heyrði örbylgjuofninn fara í gang og hélt að Caleb væri að hita morgunmatinn sinn.
Skyndilega heyrði hún hávært öskur en teningurinn sprakk með látum þegar Caleb opnaði örbylgjuofninn. Gelið slettist yfir hendur hans, andlit og annað augað og hlaut hann 2. stigs brunasár. Augað varð sem betur fer ekki fyrir skaða en nú, hálfum mánuði eftir atvikið, er Caleb enn að jafna sig heima hjá sér.
Leikfangið sem um ræðir hefur notið töluverðra vinsælda hjá ungu kynslóðinni undanfarin misseri en í frétt People er þess getið að á umbúðunum standi skýrt að ekki eigi að setja það í örbylgjuofn eða í fyrsti.
Paula Petersen, hjúkrunarfræðingur með sérhæfingu í brunameðferð, segir við People að Caleb sé mjög heppinn að hafa ekki hlotið verri áverka. Svo virðist vera sem þetta sé ekki einangrað tilfelli, ef marka má umfjöllun bandarískra fjölmiðla.
Sérfræðingur á brunadeildinni þar sem Caleb fékk meðferð sagði hann vera fjórða barnið sem kemur á deildina vegna þessa trends. Eitt þeirra hitaði teninginn í örbylgjuofni og stakk svo fingrinum ofan í hann með þeim afleiðingum að hann brenndist illa.