fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Pressan
Laugardaginn 28. febrúar 2026 07:30

Hún virðist vera ansi þreytt. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Finnst þér þú vera þreytt(ur) eftir góðan nætursvefn og skilur ekki af hverju? Þessi viðvarandi þreyta getur verið skilaboð frá heilanum um að þú þurfir á verðskuldaðri pásu að halda.

Að skilja hvað heilinn er að reyna að segja okkur, getur verið lykillinn að því að endurheimta orkuna og jafnvægi í lífinu.

Þreyta, sem virðist koma að „ástæðulausu“ er ekki alltaf vegna svefnskorts eða líkamlegra veikinda. Hún er oft merki um að heilinn hafi of mikið að gera. Hann vinnur daglega úr upplýsingum, tekst á við tilfinningar og lagar sig að flóknum aðstæðum. Þegar þetta safnast upp, sendir hann viðvörunarmerki til að hvetja þig til að hægja á þér áður en örmögnunin tekur völdin.

Í rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Current Biology, er ljósi varpað á þetta. Þar kemur fram að eftir mikla andlega vinnu geti glútamat, sem er mikilvægt taugaboðefni, safnast upp í framheilaberkinum. Það getur verið eitrað ef of mikið safnast fyrir af því.

Þessi uppsöfnun gerir að verkum að heilinn þarf enn meiri orku til að ráða við viðfangsefni sín og getur þetta myndað mikla þreytutilfinningu og skiptir þá engu þótt þú hafir fengið nægan svefn. Heilinn er einfaldlega að segja: „Stoppaðu, ég verð að fá að ná andanum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?