fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Pressan
Föstudaginn 27. febrúar 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Handbækur um kynlífsþrælkun, nektarmyndir af fórnarlömbum og gríðarlegt safn klámefnis voru meðal þess sem fannst í leynilegri geymslu sem kynferðisbrotamaðurinn Jeffrey Epstein leigði í Flórída.

Breska dagblaðið The Telegraph greindi frá málinu í vikunni. Geymsluhólfið var eitt af að minnsta kosti sex slíkum víðs vegar um Bandaríkin sem Epstein leigði á árunum 2003 til 2019.

Samkvæmt umfjöllun bandaríska blaðsins New York Post sýna kreditkortayfirlit að hann hóf að leigja slík rými árið 2003. Sum þeirra voru leigð allt til ársins 2019, sama ár og hann lést af völdum sjálfsvígs í fangaklefa í Manhattan.

Telegraph komst yfir birgðalista yfir innihald geymslunnar í Palm Beach. Samkvæmt honum fannst meðal annars þriggja blaðsíðna listi með nöfnum nuddara, ýmis konar bréf og rannsóknarniðurstöður sem ekki eru tilgreindar nánar.

Þá fundust VHS-spólur og DVD-diskar með efni sem sýndi unglinga í kynferðislegu samhengi, nektarmyndir af einstaklingum sem taldir eru hafa verið fórnarlömb Epsteins og kassar fullir af kynlífstækjum.

Samkvæmt umfjöllun Telegraph og New York Post greiddi hann starfsmönnum sínum fyrir að flytja gögn og muni frá heimili sínu í Palm Beach í geymsluna áður en yfirvöld gerðu húsleit þar árið 2005. Þetta var á sama tíma og foreldrar 14 ára stúlku leituðu til lögreglu eftir að dóttir þeirra var fengin til að fara heim til Epsteins gegn greiðslu.

Ekki liggur fyrir hvort bandaríska alríkislögreglan, FBI, hafi nokkru sinni fundið muni í geymslunum þegar hún byggði upp mál sitt gegn honum vegna mansals og kynferðisbrota.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér