fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Leitaði til lögreglu eftir að hann henti óvart gullinu sínu í ruslið – Sá fram á 18 milljón króna tjón

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 15:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalskur karlmaður hljóp heldur betur á sig þegar hann fór út með ruslið í seinustu viku og varð næstum fyrir tugmilljón króna tjóni. Með ruslinu henti hann nefnilega öskju þar sem hann geymdi 20 gullstangir sem hann hafði safnað að sér í gegnum árin; stangirnar eru metnar á 18 milljónir króna.

Voru þá góð ráð dýr hjá þessum 57 ára gamla Ítala sem ekki hefur verið nafngreindur í fjölmiðlum, enda langar hann líklega síður að fólk viti um gullið. Maðurinn leitaði aðstoðar lögreglunnar í Porto Cesara og bar sig illa. Líklega hefur hann hreinlega verið í rusli yfir þessum neyðarlegu mistökum.

Lögreglan á Ítalíu leggur greinilega ekki í vana sinn að trúa öllum sem halda því fram að þeir hafi óvart hent gullinu sínu. Fyrst var farið í að sannreyna frásögn mannsins. Lögregla hafði uppi á eftirlitsmyndavélum í nágrenni við ruslatunnuna og staðfesti þannig að maðurinn hefði vissulega farið út með ruslið á þessum stað og á þessum tíma. Lögreglumenn röktu svo ferðir ruslabílsins á næsta ruslahaug þar sem fram fór ítarleg leit.

Það tók lögreglumenn nokkrar klukkustundir að hafa uppi á öskjunni. Askjan hafði orðið fyrir tjóni en þar mátti þó enn finna allt gullið sem var svo skilað til eigandans sem tók þá gleði sína á ný.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér