fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Forstjóri tæknifyrirtækis handtekinn eftir að eiginkona hans fannst látin

Pressan
Mánudaginn 26. janúar 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forstjóri tæknifyrirtækisins Magmotor Technologies, Gordon Abas Goodarzi, var handtekinn á föstudaginn eftir að krufning leiddi í ljós að eiginkona hans, Aryan Papoli, var myrt.

Papoli fannst látin í nóvember neðan við 23 metra háa vegfyllingu í Kaliforníu. Líkið var illa farið og reyndist erfitt að bera kennsl á það. Lögregla birti teikningu af því hvernig hin látna hefði mögulega litið út og leitaði á náðir almennings. Tveimur vikum eftir líkfundinn var ljóst að hin látna var Papoli.

Goodarzi er sakaður um að hafa látið koma konu sinni fyrir kattarnef. Hjónin höfðu verið gift lengi og áttu saman tvö uppkomin börn og höfðu eins verið viðskiptafélagar. Þau stofnuðu saman orkufyrirtækið US Hybrid á tíunda áratug síðustu aldar en fyrirtækið var selt árið 2021 fyrir rúmlega sex milljarða. Papoli var fædd í Íran en flúði til Bandaríkjanna eftir byltinguna þar í landi sem breytti keisaradæminu í klerkaveldi árið 1979. Tíu árum síðar giftist hún Goodarzi en þau voru skilin að borði og sæng þegar hún lést.

Lögreglu grunar að andlát Papoli hafi borið að með saknæmum hætti. Dánarorsök hefur ekki verið opinberuð en fram hefur komið að líkið bar þess merki að hafa fallið um 23 metra.

Sonur hennar hefur stofnað vefsíðu til minningar um móður sína. Hann segist í samtali við fjölmiðla vilja heiðra minningu móður sinnar, en óskar þess að hann hefði getað gert það á meðan hún var enn á lífi. Papoli hafi verið dásamleg móðir og skapandi einstaklingur sem

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér