
Við vitum öll hversu góður kjúklingur er og hvernig er hægt að elda hann á margvíslega vegu. Við vitum líka flest hversu mikilvægt er að gæta hreinlætis við eldun hans og að kjötið sé fulleldað/gegnsteikt áður en það er borðað.
Notendur á TikTok eru farnir að deila nýju eldunarráði sem er ekki víst að sé nógu sniðugt. Aðferðin snýst um að kaupa steiktan kjúkling í poka, taka síðan kjúklinginn úr pokanum og rífa niður eins og maður myndi gera fyrir kjúklingarétt. Setja síðan kjúklingabitana aftur í pokann og bæta við hráefnum, eins og hrísgrjónum, gúrku, rifnum gulrótum, sesamfræjum og kryddi, og nota pokann eins og skál.
Þetta sparar allavega eitthvað af uppvaskinu!
Danielle Mitchell, 32 ára, fannst hugmyndin undarleg í fyrstu, en hún vildi sjá sjálf hvað allt þetta umstang á netinu snerist um.
„Ég var mjög óviss um þetta og ég held að það hafi verið það sem vakti áhuga minn á að prófa þetta. Ég hugsaði með mér, það er engin leið að þetta sé í raun gott,“ sagði ástralska mamman.
„Ég horfði á þetta og hugsaði með mér að þetta væri ekki rétt. Þetta er svo einfalt. Engin eldamennska í gangi, bara að skera nokkur hráefn niður, henda þeim í poka, hrista til og svo er allt tilbúið.“
Mitchell deildi myndbandi af sér að útbúa máltíðina sem yfir 1,1, milljón hefur þegar horft á. Margir voru óvissir með þessa aðferð.
„Bakteríurnar á pokanum, hendurnar sem snerta hann. Ég sleppi þessu,“ sagði einn netverji.
„Af hverju myndum við ekki bara blanda þessu saman í skál?“ spurði annar.
@daniellejmitchell The viral taco rotisserie chicken bag! Let’s make that 🌮👜🍗 Dinner in 5 minutes!!! Using @Mingle Seasoning ♬ original sound – Danielle Mitchell
Mitchell segir hins vegar að fólk ætti ekki að vera svona fljótt að dæma.
„Ekki hætta fyrr en þú hefur prófað þetta. Þetta lítur ógeðslega út og ég held að það sé tilgangurinn með þessu á samfélagsmiðlum. Það er ótrúlegt,“ sagði hún.