
Fyrrverandi ritstjóri Vogue hefur skrifað skáldsögu sem miðar að því að koma í stað bókarinnar Djöfullinn klæðist Prada (e. The Devil Wears Prada) sem fullkomin afhjúpun Condé Nast og tískuheimsins.
Árið 2003 skrifaði Lauren Weisberger, fyrrverandi persónulegur aðstoðarmaður Vogue-ritstjórans Önnu Wintour, The Devil Wears Prada. Bókin varð til þess að Wintour, sem er alger goðsögn í tískuheiminum, varð ímynd kaldlynds og miskunnarlauss yfirmann.
Nú hefur Filipa Fino, sem var ritstjóri Vogue í meira en áratug, skrifað eigin skáldsögu sem mun að sögn PageSix, afhjúpa enn fleiri leyndarmál en bók Weisbergers og að þessu sinni frá höfundi sem var enn nær atburðarásinni.
„Fino segir söguna frá sjónarhóli innri aðila, ekki starfsnema,“ sagði heimildarmaður.
Fino, sem hefur meðal annars starfað hjá Allure, Harper’s Bazaar og 11 ár hjá Vogue, stefnir á að gefa bókina Best Dressed út í maí. Hún hætti störfum hjá Vogue árið 2011.

Miðað við nálægð hennar við Wintour á meðan hún starfaði hjá Vogue og fjölmargar myndir sem hún hefur nýlega birt af Wintour má búast við að bókin muni innihalda persónu innblásna af Wintour. Raunverulegum nöfnum ritstjóranna hefur verið breytt, en hönnuðum og fyrirsætum verður ekki hlíft og allar sögurnar eru sannar að sögn PageSix.
Nefnir miðilinn að leiðrétta þurfi söguna af alræmdum fundi fyrirsætanna Naomi Campbell og Kate Moss með kúbverska einræðisherranum Fidel Castro árið 1998. Campbell er sögð hafa beðið um að setjast niður með Castro og hann samþykkt það.
Campbell er einnig sögð hafa beðið um 10 lífverði fyrir fundinn, sem var ekki í járhagsáætlun myndatökunnar, sem leiddi til þess að yfirmaður hennar lét falla kynþáttafordómafullar athugasemdir: „Hvers vegna að eyða svona miklum peningum í einhvern sem blandast saman?“ Leonardo DiCaprio var greinilega líka með í förinni og var á einum tímapunkti „lokaður inni í herbergi“ á Nacional hótelinu með Moss.
„Þetta var BlackBerry tímabil tísku, eyðslu og hneykslismála. Allir eiga bók, en enginn hefur sagt söguna,“ segir Fino.
