fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Segir að aðeins einn maður í heiminum geti stöðvað Vladimír Pútín

Pressan
Fimmtudaginn 15. janúar 2026 06:30

Forseti Póllands, Karol Nawrocki. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karol Nawrocki, forseti Póllands, segir að aðeins einn maður í heiminum sé fær um að stöðva Vladimír Pútín. Það er Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Þetta segir Karol í samtali við BBC þar sem hann ræddi stöðu mála í Evrópu og innrásarstríð Rússa í Úkraínu.

Karol segir að ekki sé hægt að treysta neinu af því sem Pútín segir og Evrópa verði að gera allt sem í hennar valdi stendur til að styðja við Trump í tilraunum hans til að binda enda á stríðið í Úkraínu.

Karol er eindreginn stuðningsmaður Trumps og segir hann að nú þegar Rússland ógnar Póllandi og Mið- og Austur-Evrópu sé Trump sá eini sem getur „leyst vandamálið“ eins og hann orðar það – og á sama tíma bundið enda á stríðið í Úkraínu.

Í viðtalinu sagði hann að Evrópa væri að fjarlægjast Bandaríkin og það væri ekki gott fyrir Evrópu, hvorki frá efnahagslegu eða hernaðarlegu sjónarmiði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu