fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Bandaríska hernum bannað að standa fyrir æfingum sem kallaðar hafa verið dýraníð

Pressan
Laugardaginn 10. janúar 2026 07:30

Geitur hafa verið einna mest nýttu dýrin við þessa umdeildu æfingu. Myndin er úr safni. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýjum lögum í Bandaríkjunum verður her landsins framvegis bannað að nota lifandi dýr við æfingar á þann hátt að skjóta á þau og leyfa síðan bráðaliðum að nota hin sundurskotnu dýr til að þjálfa sig í að veita skyndihjálp á vígvellinum.

Lögin tóku gildi skömmu fyrir jól en það hefur tíðkast að minnsta kosti síðan í Víetnamstríðinu að herinn nýti dýr með slíkum hætti, einkum geitur og svín.

Fjallað er um þetta í tímariti Smithsonian-stofnunarinnar en fram kemur þar að hernum verður hins vegar áfram leyft að gera ýmislegt annað við dýr svo sem að stinga þau, brenna og prófa vopn á þeim en þó með því skilyrði að dýrin verði svæfð.

Þingmaðurinn Vern Buchanan beitti sér einna mest af þingmönnum fyrir breytingunni og segir vel hægt að þjálfa bráðaliða hersins án þess að beita svo ómannúðlegum aðferðum gagnvart dýrum.

Samtök lækna hafa fagnað breytingunni sem og samtök dýraverdunarsinna sem segja þessa æfingaaðferð sem nú hefur verið bönnuð hafa falið í sér dýraníð og þetta sé mikill sigur fyrir dýr.

Ómetanlegt

Sömuleiðis verður hernum bannað að stunda rannsóknir eða gera annað það sem veldur hundum og köttum sársauka en þó eru einhverjar undantekningar frá því ef aðstæður þykja varða þjóðaröryggi.

Þetta bann kemur í kjölfar þess að á allra síðustu árum hefur þrýstingur aukist um að slíkt bann yrði sett og bæði strandgæslan og sjóherinn höfðu áður komið á sams konar banni.

Það hefur ekki tekist hins vegar að upplýsa að fullu hversu mikið þessi æfingaaðferð hefur verið notuð af hernum á síðustu árum. Í stað dýranna á að nota gínur eða leikara sem klæðast þá gervum sem líkja eftir alvöru sárum, eftir sprengjur eða skothríð. Fyrrum bráðaliði í hernum segir hins vegar að það hafi verið ómetanlegt að æfa sig á lifandi dýri því það minni mun betur en gína á að það sé lífsnauðsynlegt að hafa hraðar hendur, sem sé svo spurning um líf og dauða þegar komið sé á raunverulegan vígvöll og meðhöndla þurfi særða hermenn.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu
Pressan
Í gær

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns

Varar Vesturlönd við – Búið ykkur undir dauða Pútíns
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“

Lýsa hrottafenginni árás á morðingjann: „Ég gerði það, ég drap hann“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu