fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Pressan

Telur að drápið í gær gæti aukið óstöðugleika í Íran og gert átökin hættulegri

Pressan
Miðvikudaginn 18. mars 2026 18:00

Ali Larijani. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dráp á íranska ráðamanninum Ali Larijani í loftárás Ísraela í gær gæti gert Íran óstöðugra og aukið hættu á stigmögnun átaka á svæðinu.

Þetta er mat breska stríðsfréttaritarans David Patrikarakos sem hann leggur fram í skoðanagrein fyrir Daily Mail í morgun.

Yfirvöld í Íran staðfestu í gærkvöldi að Larijani hefði beðið bana í umræddri árás, en hann var yfirmaður þjóðaröryggisráðs Írans.

Patrikarakos segir í grein sinni að drápið á Larijani sé hluti af skipulagðri aðgerð þar sem lykilpersónur í íranska valdakerfinu eru felldar markvisst. Slíkar aðgerðir geti grafið undan stjórnhæfni og veiklað hernaðarlega samhæfingu landsins, en á sama tíma aukið hættu á ófyrirsjáanlegum viðbrögðum.

Að mati Patrikarakos er þetta hinn „grimmi fórnarkostnaður“ slíkrar stefnu. Þótt hún veiki stjórnkerfið til skamms tíma geti hún aukið óstöðugleika í heild.

Patrikarakos lýsir Larijani sem rólegum og skipulögðum einstaklingi og hann hafi að mörgu leyti verið ólíkur harðlínuröddum sem oft ráða ferðinni í opinberri umræðu í Íran.

Hann hafi jafnframt gegnt hlutverki sáttasemjara milli valdafylkinga. „Umfram allt var hann brú milli fylkinga, sá sem miðlaði málum þegar allt stefndi í upplausn,“ segir í pistlinum.

Patrikarakos bendir á að drápið á Larijani geti skapað þversagnakennda stöðu þar sem ákvarðanataka verður bæði hægari og um leið hvatvísari. „Hefndaraðgerðir verða líklegri og erfiðara verður að hafa stjórn á stigmögnun,“ skrifar hann.

Í pistlinum heldur hann því fram að þótt markmiðið með árásum á hátt setta leiðtoga Írans sé að veikja kerfið geti afleiðingin orðið aukinn óstöðugleiki. Slíkur óstöðugleiki gæti annað hvort grafið undan stjórnkerfinu eða kveikt víðtækari og hættulegri átök á svæði sem þegar einkennist af mikilli spennu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum

Er Ben litli loksins fundinn? – Telur mann sinn vera sláandi líkan breska drengnum sem hvarf sporlaust fyrir 35 árum
Pressan
Í gær

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“

Trump afhjúpaði óvart erfið veikindi þingmanns – „Okey, þetta var ekki orðið opinbert“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“

Tucker Carlson segir að dómsmálaráðuneytið sé að rannsaka hann vegna meintra tengsla við Íran – „Ég má tala við hvern sem er“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum

Hlúði að „broddgelti“ alla nóttina – Komst að sannleikanum hjá dýralækninum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum

Hreinsanir Xi Jinpin í hernum geta komið í bakið á honum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda