fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Pressan

Fékk matareitrun í typpið eftir ástarleik með eiginkonunni

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 21:30

Hann fékk matareitrun í besta vininn. Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hann var óheppinn í meira lagi 38 ára maður frá Líbanon sem varð að leita á sjúkrahúss vegna sýkingar sem læknar sjá venjulega aðeins í ónýtum hrísgrjónaréttum.

Maðurinn, sem hefur ekki verið nafngreindur, skrifaði sig beint í læknisfræðibækur og það vegna mjög vandræðalegs máls.

Allt hófst þetta hjá honum með huggulegum fjölskyldumálsverði þar sem hrísgrjón voru á boðstólum. Því miður voru grjónin stútfull af bakteríunni Bacillus cereus en hún veldur klassískri matareitrun.

Fjölskyldan fékk öll uppköst og maðurinn gott betur en það. Í miðjum hremmingunum fengu hjónin þá hugmynd, eða öllu heldur langaði til, að stunda kynlíf.

Í skýrslu læknanna kemur fram að á meðan á hinum „kraftmiklu samförum“ stóð hafi kynfæri mannsins komist í snertingu við leifar af uppköstum eða saur frá konunni sem glímdi við matareitrun.

Við samfarir myndast smá áverkar á kynfærunum og þar með er allt galopið fyrir bakteríur. Í þessu tilfelli hafði það þær afleiðingar að maðurinn leitaði á slysadeild með bólginn, rauðan og sárum þakinn getnaðarlim.

Læknunum var að sjálfsögðu mjög brugðið því aldrei áður hafði Bacillus cereus valdið sýkingu í kynfærum. Bakterían heldur sig venjulega við að eyðileggja meltinguna.

Eftir eins mánaðar stífa sýklalyfjameðferð voru maðurinn og limurinn komnir í toppform á nýjan leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

FIFA hafnar beiðni Íran
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku

Ísraelsmenn drápu yfirmann öryggisráðs Írans í nótt – Hótaði Trump í síðustu viku
Pressan
Í gær

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar

Par dæmt í fangelsi fyrir að eltihrella þroskahamlaðan starfsmann kjúklingastaðar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim

Voru blekktir til að berjast fyrir Rússa en snúa nú heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði

Þetta er besta landið fyrir ellilífeyrisþega – Hægt að lifa góðu lífi fyrir 260.000 á mánuði
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum