fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ógnvekjandi þróun – Sprenging í fjölda kynferðisbrota gegn börnum

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 13:30

Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ógnvekjandi þróun á sér stað í Bretlandi þar sem sprenging hefur orðið í fjölda kynferðisbrota gegn börnum. Um 1.000 manns eru handteknir í landinu í mánuði hverjum, grunaðir um barnaníð.

The Guardian skýrir frá þessu og byggir á upplýsingum frá lögreglunni sem segir að nútímatækni og Internetið leiki stórt hlutverk í þessum málaflokki.

Segir lögreglan að á síðustu fimm árum hafi 50% fjölgun orðið á þeim fjölda barna sem njóta verndar vegna ofbeldis eða hættu á að þau verði beitt ofbeldi.

National Crime Agency (NCA), sem berst gegn skipulagðri glæpastarfsemi, segir að aukningu brota gegn börnum megi meðal annars rekja til nútímatækni. Koma hinir ýmsu staðir á netinu þar við sögu, þar geta gerendurnir bæði snúist til öfgahyggju og séð myndir af barnaníði undir því yfirskini að ekkert sé óeðlilegt við það.

Vinsælir samfélagsmiðlar eru oft notaðir af fullorðnum til að komast í samband við börn.

Rob Jones, forstjóri NCA, sagði að þessi mikla aukning níðingsmála valdi NCA miklum áhyggjum. Hann sagði að nú berist lögreglunni tíu sinnum fleiri ábendingar um fólk, sem er talið beita börn kynferðislegu ofbeldi, en fyrir tíu árum.

Í hverjum mánuði bætast um 1.200 börn við þann hóp sem nýtur sérstakrar verndar vegna slíks ofbeldis, bæði þolendur og börn sem talið er að séu í yfirvofandi hættu á að verða beitt ofbeldi.

Jones sagði að megnið af því barnaníðsefni, sem er aðgengilegt á netinu, séu „þekktar myndir“, myndir sem hafi verið þar um langa hríð. Hann sagði að tæknifyrirtækin geti látið fjarlægja þetta myndefni.

„Hættan eykst þrátt fyrir baráttu okkar. Það er meira aðgengi að börnum á Internetinu,“ sagði hann.

The Guardian segir að talið sé að allt að 840.000 fullorðnir Bretar hafi kynferðislegan áhuga á börnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér