fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þetta á aldrei að setja í uppþvottavélina að sögn sérfræðinga

Pressan
Laugardaginn 21. febrúar 2026 13:30

Það má ekki setja hvað sem er í uppþvottavélina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Uppþvottavél er ómissandi á mörgum heimilum. Diskum, glösum, hnífapörum og fleiru er bara stungið í vélina sem sér síðan um þrifin.

En það þarf að hafa í huga að ekki má setja öll eldhúsáhöld í uppþvottavélina. Daily Express ræddi við tvo sérfræðinga á þessu sviði og bentu þeir á nokkra hluti sem á að halda fjarri uppþvottavélinni ef þeir eiga að endast.

Tréhlutir eiga ekki að fara í uppþvottavélina. Skurðarbretti og sleifar út tré drekka í sig vatn í uppþvottavélinni. Viðurinn þenst út og þegar hann þornar á nýjan leik getur sprungur myndast eða hann rifnað í sundur.

Beittir hnífar eiga heldur ekkert erindi í uppþvottavélina, þá á að þvo í höndum. Hinn mikli hiti og sterkt þvottaefnið slítur hnífsblaðinu hratt og grjótharðar vatnsbunurnar í vélinni geta orðið til þess að hnífarnir lenda á einu og öðru í vélinni. Þetta getur skemmt þá og uppþvottavélina sjálfa.

Steypujárnspottar eiga heldur ekkert erindi í uppþvottavélina. Þvottaefnið eyðir innbrenndri húð þeirra sem virkar sem ryðvörn.

Fínn kristall, viðkvæmt gler og postulín á að vaska í höndum því hár hiti og sterkt þvottaefnið getur með tímanum valdið sprungum og gert glerið matt.

Hitakönnur og drykkjardúnkar með einangrun á líka að þvo í höndum. Vatn getur komist inn á milli einangrunarinnar og annarra hluta og þá er erfitt að halda hitanum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér