fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Óhugnanlegt myndband úr verslun sýnir mann reyna að ræna eins árs stúlku

Pressan
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ítalska lögreglan hefur birt óhugnanlegt myndband sem tekið var í Esselunga-verslunarmiðstöðinni í Bergamo á laugardag.

Á eftirlitsmyndavél sést þegar móðir og eins árs dóttir hennar leiðast hönd í hönd út úr matvöruverslun í mollinu. Skyndilega mætir þeim maður sem reynir að hrifsa stúlkuna frá móður sinni sem bregst við með því að verjast af hörku.

Fólk sem varð vitni að atvikinu brást fljótt við og tókst því að yfirbuga manninn og koma skelkaðri stúlkunni aftur í fang móður sinnar. Lögregla var kölluð á vettvang og var maðurinn handtekinn og kærður fyrir tilraun til mannráns og ofbeldisbrot.

Litla stúlkan slapp því miður ekki ómeidd en hún var flutt á sjúkrahús þar sem í ljós kom að hún hafði hlotið brot á lærlegg.

Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til en lögregla hefur þó staðfest að engin tengsl séu á milli mannsins og stúlkunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér