fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Pútín og Kim senda konur í lagervinnu og launin fara beint til einræðisstjórnarinnar

Pressan
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 13:30

Kim Jong-Un og Pútín heilsast í heimsókn þess fyrrnefnda til Rússlands í september 2023.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lest strætisvagna kom að stórri lagerbyggingu nærir Moskvu. Út stigu norðurkóreskar konur umkringdar vörðum og einangraðar frá umheiminum.

Þær eiga að vinna á risastórum lager rússneska netsölufyrirtækisins Wildberrie‘s. Laun þeirra eru svo lág að þau hverfa eiginlega áður en þau ná á áfangastað. Express skýrir frá þessu.

Konurnar voru sendar til Rússlands samkvæmt samningi sem Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, og Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, gerðu.

Rússneski miðillinn VChK OGPU segir að norðurkóreskir karlmenn fylgi konunum og sjá til þess að þær yfirgefi ekki híbýli sín né tali við rússneskt samstarfsfólk sitt.

Rússneskt starfsfólk lagersins fær að jafnaði sjö til tíu þúsund rúblur fyrir eina vakt, það svarar til 1.300 til 1.600 íslenskra króna. Norðurkóresku konurnar fá ekki svo mikið því þær verða að sætta sig við um 3.500 rúblur  en það svarar til um 560 íslenskra króna. Stærsti hluti launa þeirra rennur beint í vasa norðurkóresku einræðisstjórnarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu