fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Dæmdur til dauða fyrir að myrða kærustuna sína og fjögurra ára dóttur hennar

Pressan
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 19:30

Mæðgurnar sem voru myrtar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dómstóll í Hillsborough-sýslu í Florida, Bandaríkjunum, hefur dæmt 33 ára mann til dauða fyrir hryllilegan glæp.

Angel Gabriel Cuz Chos var gefið að sök að hafa myrt Amaliu Coc Choc de Pec, 36 ára, og Estrellu Anastasia Pec Coc, 4 ára dóttur hennar, þann 24. apríl árið 2024.

Ákærði og brotaþoli eru frá Guatemala en bjuggu í Florida.

Samkvæmt vitnisburði réðst Cuz Choc á konuna með skóflu og hnífi en ástæðan var sú að hann reiddist mjög yfir því að hún kom seinna heim en hann hafði vænst.

Lögreglumenn sem komu á vettvang fundu konuna í liggjandi í blóði sínu í bakgarðinum hjá hjólhýsi sem fólkið bjó í. Blóðug handarför voru á hlið hjólhýsisins, sem gáfu til kynna að konan hafi dáið er hún reyndi að flýja.

Barnið, aðeins fjögurra ára, fannst látið í baðkari inni í hjólhýsinu. Hafði hún verið stungin tvisvar í hálsinn og fjórum sinnum í hendurnar. Varnarsár á höndum sýndu að hún hafði reynt að grípa í hnífsblaðið.

Víðtæk leit var gerð að Cuz Choc og fannst hann eftir 18 tíma.

Saksóknari í málinu, Suzy Lopez, sagði við fjölmiðla: „Ekkert getur fært Amalíu og Estrellu aftur til lífsins en við teljum okkur hafa fengið réttlæti fyrir þær og eftirlifandi ættingja í Guatemala.“

Sjá nánar um málið hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér