fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 12:00

Er Facebook að hlusta á okkur? Mynd: REUTERS/Dado Ruvic

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

23 ára áströlsk kona, Adelaide Bracey, er sannfærð um að Facebook hafi hlustað á einkasamtöl hennar í gegnum snjallsíma hennar og hafi notfært sér upplýsingarnar til að beina markvissum auglýsingum að henni.

The Sun segir að Bracey segist margoft hafa fengið auglýsingar á Facebook um vöru og þjónustu sem hún hafa bara talað um við vini sína og aldrei leitað að á internetinu.

Bracey sagði að auglýsingar um sánabað hafi byrjað að birtast í Facebookflæði hennar nokkrum vikum eftir að hún og vinkona hennar töluðu um sánabað. Hún sagði þetta hafa verið óþægilega reynslu og að ekki sé hægt að skýra auglýsingarnar út frá almennri netnotkun hennar.

„Ég gúgglaði ekki og svo birtist þessi auglýsing á Facebook. Þetta er mjög óhugnanlegt,“ sagði hún.

Hún sagði einnig að sömu auglýsingarnar fylgi henni oft dögum saman eftir að hún leitar að einhverju á Internetinu og að einnig hafi markvissum auglýsingum verið beint að henni þrátt fyrir að hún hafi bara nefnt efnið einu sinni í samtali við vinkonu sína.

Umræðan um að samfélagsmiðlar hlusti á notendur sína í gegnum snjallsíma þeirra hefur farið fram árum saman en sönnun hefur aldrei verið færð á þetta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Í gær

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér