fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

„Óhamingjusamasti maður sem ég hef hitt hafði nýlega unnið í lottóinu“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 16. janúar 2026 06:30

Matt Pitcher í Ted-fyrirlestri sínum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjármálaráðgjafi sem starfaði við að veita vinningshöfum í breska lottóinu ráðgjöf segir að það sé engin ávísun á hamingju að vinna þann stóra.

Matt Pitcher starfaði um árabil við fjármálaráðgjöf hjá Camelot, sem rak breska lottóið frá stofnun þess árið 1994 til 2024. Hann hélt svokallaðan Ted-fyrirlestur fyrir skömmu þar sem rifjaði til dæmis upp eitt eftirminnilegt atvik þar sem vinningurinn breyttist í hálfgerða bölvun fyrir hjón á besta aldri.

Matt var í sérfræðingateymi Camelot sem hafði það hlutverk að styðja nýja milljónamæringa við að takast á við þær miklu og snöggu breytingar sem lottóvinningur getur haft í för með sér.

Vandamálin hófust þarna

Í fyrirlestri sínum lýsti Pitcher tilviki þar sem hann fékk til sín hjón í ráðgjöf sem höfðu nýlega unnið stóran lottóvinning.

„Það var mjög heitur sumardagur og ég sat á skrifstofu þar sem loftræstingin var biluð. Á móti mér sat óhamingjusamasti maður sem ég hef nokkru sinni hitt. Þessi maður hafði nýlega unnið í lottóinu,“ sagði hann.

Pitcher sagði að tveimur vikum áður hafi maðurinn verið ánægður og sáttur við lífið. Hann og eiginkona hans voru á leið á eftirlaun og höfðu sýnt nægjanlega fyrirhyggju þannig lífeyrissparnaður þeirra dugði til að standa undir útgjöldum og rúmlega það. Þá áttu þau gott samband við uppkomin börn sín sem bjuggu í nágrenninu og áttu gott tengslanet.

Vandamálin hófust að sögn Pitchers þegar fregnir af vinningnum fóru að berast út í nærumhverfi hjónanna, meðal annars vegna þess að þau tóku sjálf virkan þátt í að deila gleðinni með öðrum. Fljótlega fór vinningurinn að valda meiri skaða en ávinningi.

Pitcher segir að afbrýðisemi hafi spillt vináttusamböndum og að ættingjar sem lítið höfðu látið til sín taka hafi allt í einu haft samband og beðið um hlutdeild í vinningnum. Í sumum tilvikum hafi beinlínis verið gerðar kröfur um peninga.

„Tveimur vikum eftir vinninginn hafði runnið upp fyrir manninum að vinningurinn myndi breyta lífi hans, en ekki á þann hátt sem hann hafði gert ráð fyrir,“ sagði Pitcher. Á þessum tímapunkti, tveimur vikum eftir útdráttinn, voru hjónin þegar farin að skipuleggja flutning í annan bæ til að komast undan álaginu.

Fleiri sorgleg dæmi

Breska blaðið Mirror fjallaði um fyrirlestur Pitchers en í umfjöllun miðilsins er bent á að saga breska lottósins sé full af sorglegum dæmum um hvernig lottóvinningur hefur breytt lífi fólks til hins verra.

Árið 2002 vann til dæmis sorphirðumaðurinn Michael Carroll tæplega 10 milljónir punda. Hann varð fljótt þekktur fyrir óhóflega eyðslu og sneri aftur til fyrri starfa átta árum síðar eftir að hafa eytt öllum vinningnum.

Þá er rifjuð upp saga Callie Rogers sem varð yngsti milljónamæringur í sögu breska lottósins þegar hún vann 1,8 milljónir punda aðeins 16 ára gömul. Hún hefur síðar sagt að vinningurinn hafi eyðilagt líf hennar.

Hún eyddi stórum fjárhæðum í fatnað, fegrunaraðgerðir og skemmtanalíf, auk þess að gefa vinum og fjölskyldu um hálfa milljón punda. Að lokum stóð hún uppi blönk og sagði að „svokallaðir vinir hennar“ skulduðu henni enn háar fjárhæðir.

Pitcher segir að Camelot hafi lagt sig fram um að styðja við bakið á vinningshöfum. Hver og einn hafi fengið sérstakan tengilið sem fagnaði með þeim þegar vel gekk og var þeim til stuðnings þegar erfiðleikar komu upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu